8
Úr verkfærakistu kennarans
Störf kennarans eru í sífelldri þróun. Engin ein kennsluaðferð uppfyllir allt
sem þarf til þess að nám fari fram í öllum nemendahópnum. Beita þarf
fjölbreyttum aðferðum og leita jafnvægis milli
kennaramiðaðrar
og
nem-
endamiðaðrar
kennslu.
Kennaramiðuð kennsla er sú kennsla sem kennarinn skipuleggur í þaula
án aðkomu nemenda. Í henni geta þó falist fjölbreytt verkefni og árangurs-
rík. Ókosturinn við kennaramiðaða kennslu er sá helstur að aðkoma nem-
enda að skipulagi er í lágmarki og svo vill brenna við að kennarinn sjálf-
ur gegni aðalhlutverki í kennslustundum. Þá getur verið talsverð áskorun
fyrir kennarann að viðhalda athygli og að sjá til þess að allir nemendur taki
virkan þátt í eigin námi.
Í nemendamiðaðri kennslu er nemandinn hafður með í ráðum þegar
vinnan er skipulögð. Áhersla er lögð á ábyrgð nemenda á eigin námi og
áhuga á því sem við er að glíma. Markmiðið er að þeir skapi og þrói með
sér þekkingu í samstarfi við kennarann og samnemendur sína. Um leið og
nemandi finnur að mark er tekið á því sem hann hefur fram að færa vaknar
áhugi og jákvæðni gagnvart náminu eykst.
Í nemendamiðaðri kennslu er kennarinn ekki aðeins sérfræðingur í náms-
efninu heldur ekki síður sérfræðingur í að mæta þörfum nemenda og fá
þeim heppileg verkfæri til nota við námið. Í stað þess að mata nemendur
á staðreyndum eða sjónarmiðum og kenna þeim rétt svör reynir hann að
finna nýjar hliðar á viðfangsefninu, tengja það áhuga nemenda og hjálpa
þannig nemandanum að skapa sér nýja þekkingu og ný tækifæri í náms-
ferlinu. Kennarinn er þá orðinn leiðtogi og verkstjóri (e.
facilitator
) og
aðalhlutverk hans verður að kveikja með nemendum innri hvöt til að afla
sér þekkingar.
Nemendamiðuð kennsla
Kennarinn sem leiðtog
i
• leggur áherslu á
námsferlið sjálft
• hjálpar nemendum
og útvegar þeim
verkfæri þannig
að þeir geti sjálfir
fundið svör
• fer oft út fyrir efnið
• þarf að vera skapandi
og spinna kennsluna
á staðnum
4
Kennaramiðuð kennsla
Kennarinn sem
sérfræðingur
• leggur áherslu á þekk-
ingu og efnistök
• veitir nemendum svör
• vinnur með þekktar
staðreyndir
• einbeitir sér að einu
viðfangsefni
• hefur fulla stjórn á
aðstæðum