1.hefti 2.hefti 3.hefti Um höfundana

Bækurnar komu fyrst út í byrjun áttunda áratugarins og má segja að þær hafi verið með fyrstu bókum sinnar tegundar á íslensku. Þær voru mikið notaðar í lestrarkennslu en hafa verið ófáanlegar í mörg ár.

Höfundar og teiknari hafa nú gefið leyfi til að setja þessar sívinsælu bækur á vef Námsgagnastofnunar svo að þær geti áfram nýst nemendum sem þurfa á verkefnum af þessum toga að halda. Kennarar geta nú valið verkefni úr bókunum við hæfi nemenda sinna, prentað út og komið fyrir í möppu eða heft saman og búið til bók.

  • Bækurnar eru 48 blaðsíður nema sú þriðja sem er 47.
  • Á hverri blaðsíðu eru fyrirmæli um vinnubrögð sem ætlast er til að kennarinn lesi og skýri fyrir börnunum.
  • Sérstakir listar yfir þjálfunaratriði eru í bókunum þar sem gerð er grein fyrir hvað æft er hverju sinni.

Bækurnar Leikur að orðum 1, 2 og 3 eru hugsaðar sem upprifjunar- og vinnubækur í lestri.

1.hefti 2.hefti 3.hefti