Sögurnar sem hér er að finna birtust fyrst í lestrarbókum Ríkisútgáfu námsbóka fyrir miðja tuttugustu öld. Þær eru flestar úr safni Steingríms Arasonar og voru upphaflega valdar af kennurum sem sáu um útgáfu lestrarbókanna. Má þar nefna Bjarna Bjarnason, Jón J. Þorsteinsson og Vilberg Júlíusson.

Margir kennarar og foreldrar þekkja þessar sögur og hafa þær átt miklum vinsældum að fagna hjá lesendum á öllum aldri. Fyrir byrjendur í lestri, sem þurfa að æfa lestrarleiknina, felst kostur þeirra ekki síst í endurtekningu sem einkennir þær flestar. Sömu orðin og stefin koma fyrir aftur og aftur og auðvelda börnunum lesturinn. Þau læra gjarnan stefin utan að og geta því lesið þau viðstöðulaust en það gerir þau öruggari um eigin lestrargetu. Sérstaklega getur þetta verið hvetjandi fyrir börn sem eru seinlæs. Svo eru sögurnar bráðskemmtilegar og gefa tilefni til umræðu og vangaveltna um ýmis siðfræðileg atriði.

Gert er ráð fyrir að kennarar velji sögur fyrir nemendur eða með nemendum, prenti út og komi fyrir í möppu. Einnig má hugsa sér að sögurnar séu prentaðar einu sinni, plastaðar, gormaðar og komið fyrir í bókakassa. Tilangurinn er fyrst og fremst að bjóða upp á viðbótar lestrarefni sem margir hafa bent á að gaman væri að hafa aðgang að. Vilji kennarar nota þessi lestrarblöð sem kveikju að ritun má benda á hugmyndir að ritunarblöðum með efninu Rumur í Rauðhamri - gagnvirk verkefni (Kennari) á Krakkasíðum Námsgagnastofnunar.
 

Til baka