Previous Page  25 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 25 / 108 Next Page
Page Background

23

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

Þankahríð

Þankahríð, eða hugstormun, er aðferð notuð til að ná yfirsýn yfir tiltekið við-

fangsefni, til að fá hugmyndir að nýjum verkum eða finna skapandi lausnir. Nem-

endur eru hvattir til að nefna allt sem þeim dettur í hug tengt viðfangsefninu. Þetta

má gera munnlega, á töflu, blað eða tölvuskjá. Ein leið til að koma á þankahríð er að

búa til hugarkort en þeim eru gerð betri skil í næsta kafla.

Í þankahríð er brýnt að setja reglur sem gilda í umræðum. Sem dæmi má nefna að

engin hugmynd er heimskuleg og að skapandi lausnir eru oft sprottnar út frá því

sem áður var talið galið eða ógjörningur. Skapa þarf jákvætt og styrkjandi and-

rúmsloft svo að nemendur hafi kjark til að koma fram með sínar hugmyndir og

dæmi ekki hugmyndir annarra. Aðferðin á vel við í margs konar verkefnum hvort

sem um einstaklingsvinnu, paravinnu, hópvinnu eða vinnu með öllum bekknum

er að ræða. Vinna í smærri hópum eykur oft virkni nemenda og því tilvalið að nota

fjölbreyttar útfærslur af þankahríð en þeim er lýst hér á eftir.

Þristurinn

8

Nemendum er skipt í þriggja manna hópa. Kennarinn fær þeim við-

fangsefni eða hugtak til umfjöllunar. Einn úr hópnum er ritari og

keppist við að skrifa niður atriði, hugmyndir eða lausnir sem hinir

nefna og tengjast viðfangsefninu. Að loknum fyrirfram ákveðnum

tíma er svo skipt um hlutverk. Að sjálfsögðu fer það eftir umfangi

hvers viðfangsefnis hve mikinn tíma þetta tekur en gott er að miða

við 5–7 mínútur í hverri umferð. Til að liðka fyrir hópvinnunni er

gott að láta nemendur draga um hlutverk í upphafi. Nota má skák-

klukku eða tímamæli í tölvu eða snjalltæki til að tíminn til umráða

verði sýnilegri og nemendur skiptist á að skrifa.

Heilaskrif

Nemendum er skipt í þriggja til fjögurra manna hópa. Kennari fær öllum hópum

sama viðfangsefni. Hver hópur fær í upphafi sjö til tíu mínútur til að skrá hug-

myndir sínar á blað. Að þeim loknum skiptast hóparnir á blöðum og eiga að bæta

við þær hugmyndir sem komnar eru. Þetta er endurtekið þar til allir hópar hafa

komið að hugmyndablöðum allra. Í lokin eru hugmyndirnar kynntar. Dæmi um

viðfangsefni: Hvað og hvernig væri skemmtilegt að læra um stríðsárin á Íslandi?

Hvað langar okkur að vita um Þuríði sundafylli og aðrar landnámskonur á Íslandi?

Hvað viljum við vita um búddisma? Hverju langar okkur að kynnast í Danmörku?

Hvernig verkefni gætum við leyst um skordýr? Hvað eigum við að gera á næstu

bekkjarskemmtun?

Þristurinn