Verkefni
Að vera unglingur:
Verkefni 1
Verkefni 2

Menntun:
Verkefni 1
Verkefni 2

Krækjur

 

  Sjálfsmyndin Réttindi og skyldur Hverjir ráða? Samastaður ... Upplýsingasamfélagið
..Réttindi og skyldur
  Að vera unglingur - Verkefni 1
 

1. Af hverju myndast andstaða milli unglinga og foreldrakynslóðarinnar? Hvað er hægt að gera til að draga úr henni?

2. Hvernig finnst þér að fullorðnir ættu að umgangast unglinga? Teldu upp fimm atrið yfir umgengni þar sem 1 er mikilvægastur, 2 næst mikilvægastur og svo framvegis.

3. Búðu til dæmi út frá eftirfarandi fullyrðingu: ,,Stundum getur verið þægilegt að vera barn því þá losnar maður undan ábyrgð“. Hvaða kostir og gallar geta fylgt því að vera fullorðinn?

4. Föt eru til að koma í veg fyrir að þér verði of kalt eða heitt, en þó eru það ekki veðurskilyrðin sem ákvarða hvers konar fötum þú klæðist. Föt eru einnig tákn og segja öðrum hver við erum eða viljum vera.

Í einum bekk var rætt um merkjavörur og hópþrýsting. Nína vakti fyrst máls á efninu vegna þess að henni fannst allt of mörg af bekkjarsystkinum hennar of upptekin af merkjavörum - það er að fötin eigi að vera af einhverju ákveðnu merki. Ef buxurnar eru til dæmis ekki með réttan merkimiða þá á viðkomandi von á að fá neikvæðar athugasemdir og verða fyrir stríðni. Aumingja Pétur til dæmis, hann mætti í nýrri peysu í skólann sem honum fannst flott - en öðrum fannst hún hallærisleg vegna þess að hún var ekki merkjavara. Hann fékk þvílíkar hæðnisglósur og athugasemdir að hann hefur ekki látið sjá sig í peysunni aftur. Hvað stýrir vali þínu á fötum og hvers vegna? Hvað er það versta sem gæti komið fyrir ef þú mættir ekki í  réttum fötum í skólann? Hvað eru töff föt og hvað hallærisleg? Af hverju?