1. Verkefni valið:
Ákveðið hvað þið ætlið að
gera og lýsið því með því
að skrá aðalatriðin.
Munið að skrá líka hjá ykkur hvernig
þið hyggist kynna verkefnið ykkar og hverjum þið
ætlið að kynna það!
2. Markmið skráð:
Hvað viljið þið vita meira um - hvað viljið
þið læra í verkefninu?
Hvaða verkfæri ætlið þið að nota?
Athugið hvort þið hafið aðgang að þeim
verkfærum sem þið viljið nota.
Kunnið þið að nota þau eða þurfið
þið að læra það fyrst?
Skráið hjá ykkur nytsamar upplýsingar
svo sem bókartitla, vefslóðir eða aðrar
heimildir sem þið ætlið að nota.
3. Aðferð valin:
Ákveðið hvernig ætlið þið að
vinna. Ætlið þið að vinna ein eða með
öðrum? . Þarf að semja um einhver atriði?
4. Verkáætlun:
Gerið áætlun fyrir verkið áður en
þið hefjist handa, þar þarf að koma fram
lýsing á því sem á að gera
og verkaskiptingu hópsins ef fleiri vinna saman.
Það þarf að búa til tímaáætlun
og skrá yfir atriði sem ákveða þarf
í samvinnu við aðra eða semja um við aðra.
5. Dagbók:
Skráið hjá ykkur upplýsingar um daglega
framvindu. Hvernig skipuleggið þið verkefnið?
Hver gerir hvað? Stenst áætlunin eða þarf
að leiðrétta hana?
Hvernig veljið þið efni í verkefnið ykkar?
Hvernig vinnið þið úr efninu og mótið
það? Standast markmiðin sem þið hafið
sett? Skráið hjá ykkur hvort svo er/er ekki. Er
hópurinn sammála um allt? Ef ekki - hver er þá
ágreiningurinn?
6. Kynning/ skil:
Kennarinn ákveður hvernig þið skilið verkefninu.
Ef þið eigið að kynna verkefnið ykkar fyrir
öðrum þegar því er lokið þurfið
þið að ákveða hverjum ætlið þið
að kynna það? Þið þurfið líka
að sjá til þess að eftir kynninguna verði
umræður um verkefnið ykkar.
Gætið þess að skrá hjá ykkur
helstu spurningar sem fram koma í umræðunum.
7. Mat:
Nú eigið þið að bera árangurinn
saman við markmiðin sem þið settuð ykkur í
upphafi og áætlunina sem þið gerðuð.
|