Vefleiðangur um gyðingdóm

Sækja pdf-skjal

 

 

Kynning

Kæru nemendur. Við búum í fjölbreyttum heimi þar sem fyrirfinnast margskonar mismunandi menningarheimar, siðir og átrúnaður. Við erum ekki öll eins. Okkur finnst ekki öllum sami maturinn góður eða sömu myndirnar skemmtilegar. Okkur langar ekki öllum að vinna við það sama og við höfum mismunandi skoðanir á því hvað sé mikilvægt í lífinu. En við eigum flest sameiginlegt að vilja lifa saman í friði og sátt. Til þess að geta gert það þurfum við að skilja menningu, siði og trúarbrögð annarra og bera virðingu fyrir þeim. Með því sjáum við kannski að það er í raun margt sem virðist í fyrstu ólíkt okkar siðum eða hugmyndum sem reynist svo mjög líkt þegar betur er að gáð.

Í þessu verkefni eigið þið að fara í hlutverk trúarbragðafræðinga. Framundan er stór heimsráðstefna fólks af mörgum mismunandi trúarbrögðum með yfirskriftinni: Lifum saman í friði.

Ykkur hefur verið falið það hlutverk að halda kynningu á gyðingdóm, en áður en þið getið það verðið þið að kynna ykkur vel hverjir Abraham, Móse og fleiri sögufrægir gyðingar voru og í hverju það felst að vera gyðingur.

 

Verkefni

Þegar þið hafið aflað ykkur þeirra upplýsinga sem þið þurfið þá eigið þið að útbúa kynningu á gyðingdóm. Hér eru nokkrar tillögur um leiðir til að skila verkefninu. Athugið að velja leið í samvinnu við kennarann og kannski hefur hann ákveðna leið í huga. Aðrar leiðir en hér er getið koma einnig til greina. Þið getið búið til:

  • hefðbundinn fyrirlestur þar sem þið útbúið PowerPoint glærur til að styðjast við

  • búið til heimildarmynd

  • búið til kynningarbækling í forritinu Publisher

  • búið til teiknimyndasögu um sögu gyðingdóms þar sem fram koma margskonar þættir sem tengjast átrúnaðinum

  • búið til kynningu sem er einhverskonar sambland af fyrri tillögum

 

Bjargir

Vefir

Trúarbragðavefurinn – Gyðingdómur

Þetta er aðal heimildarvefurinn okkar. Á honum er að finna flest allt sem þú þarft að vita um gyðingdóm. Á honum er einnig mikið af myndum og tenglum á aðra vefi með efni um gyðingdóm.

Bækur

Gyðingdómur -  sáttmáli þjóðar eftir Sigurð Inga Ásgeirsson

Þetta er kennslubók um gyðingdóm fyrir miðstig grunnskóla. Sagt er frá upphafi trúarinnar og fyrirheitna landinu. Þá eru lýsingar á helgisiðum, venjum og hátíðum, sagt frá útbreiðslu átrúnaðsins og hinum ýmsu stefnum innan hans.

Maðurinn og trúin eftir Gunnar J. Gunnarsson

Þetta er kennslubók fyrir unglingastig þar sem fjallað er um helstu trúarbrögð heims, gyðingdóm, kristni, íslam, hindúasið og búddadóm. Áhersla er lögð á inntak trúarbragðanna og áhrif þeirra á daglegt líf og samfélag þeirra sem þau játa.

A faith like mine eftir Laura Buller

Þetta er barnabók þar sem börn frá hinum ýmsu trúarbrögðum segja frá trú sinni, siðum og menningu. Bókin er með fjölda fallegra ljósmynda, korta og dagatala. Bókin er á einfaldri ensku þannig að nemendur á miðstigi ættu alveg að geta nýtt sér hana.

Myndband

Gyðingdómur - Fræðslumynd eftir Sigurð Inga Ásgeirsson

Kennslumyndband fyrir grunnskólanemendur sem fjallar um gyðingdóm. Myndin sýnir meðal annars frá gyðingafjölskyldu á Íslandi.

 

Ferli

  1. Fyrst skiptir kennarinn ykkur í 5 manna hópa.

  2. Þið lesið yfir þennan vefleiðangur, setjist svo saman og ræðið verkefnið. Berið saman bækur ykkar um hvað þið vitið nú þegar um gyðingdóm og hvaða skoðun þið hafið á því. Ræðið einnig hvað þið vitið ekki, hvað þið viljið vita og skrifið niður spurningar sem kunna að vakna.

  3. Þvínæst ákveðið þið í samráði við kennarann hvernig þið viljið leysa verkefnið. Viljið þið halda fyrirlestur, búa til heimildarmynd, búa til teiknimyndasögu eða búa til fræðslubækling? Ekki er víst að kennari geti boðið upp á allar þessar lausnir og því er mjög mikilvægt að velja í samráði við hann.

  4. Þegar þið hafið ákveðið hvaða leið þið ætlið að fara skuluð þið skipta með ykkur verkum fyrir heimildaleitina. Þið skuluð öll lesa kaflana um forsögu gyðingdóms, því þar er að finna grunninn að því að skilja inntak gyðingdóms. Hinum köflunum skuluð þið skipta á milli ykkar. Einn skoðar síðari sögu átrúnaðarins og stöðu hans í dag, einn skoðar kennisetningar og reglur, einn skoðar tákn og helga dóma, einn siði tengdim gyðingdóm og einn skoðar hátíðir átrúnaðsins. Spurningunum sem þið skrifuðuð niður skuluð þið einnig skipta niður í samhengi við hvaða kafla hver tekur. Ef þið eruð t.d. með spurninguna: Hver er helsta hátíð gyðingdóms? þá er eðlilegast að sá sem ætlar að lesa kaflann um hátíðir sjái um að svara þeirri spurningu.

  5. Hver fyrir sig skoðar nú efni sem tengist sínum köflum. Skoðið efni á Trúarbragðavefnum en einnig á öðrum björgum sem hafa verið tilgreindar. Ef þið vitið um eitthvað annað efni um gyðingdóm þá er ykkur einnig velkomið að nota það. Ef þið þekkið einhvern gyðing þá væri einnig mjög gott hjá ykkur að tala við þann aðila.

  6. Þegar þið eruð að skoða heimildir þá skuluð þið skrifa niður glósur um það sem þið finnið og safna einnig áhugaverðum myndum sem passa við efnið.

  7. Þegar þið teljið ykkur hafa safnað nægu efni skuluð þið skipuleggja hvernig verkefnið ykkar verður uppbyggt. Það gerið þið með því til dæmis að búa til grind að kynningarbækling eða skrifa handrit að teiknimyndasögu eða stuttmynd. Berið þessar hugmyndir undir kennarann ykkar áður en þið haldið áfram.

  8. Þegar kennarinn hefur samþykkt hugmyndir ykkar er kominn tími á lokavinnuna. Þið skuluð skipta með ykkur verkum og vinna að gerð þess efnis sem þarf fyrir ykkar framsetningu. Ef þið eruð með Power Point fyrirlestur þá útbúið þið glærur og texta fyrir fyrirlesturinn. Ef þið eruð með teiknmyndasögu þá teiknið þið myndir og skrifið hnitmiðaðan texta við. Ef þið eruð með bækling í Publisher þá skrifið þið textann og setjið hann upp. Ef þið eruð með stuttmynd þá takið þið upp atriði samkvæmt handriti og klippið þau saman.

  9. Þegar verkefnið er tilbúið þá skilið þið því til kennarans á formi sem hann biður um. Það gæti t.d. verið útprentað, á geisladisk eða á netinu.

  10. Að lokum verður kynning þar sem að allir hóparnir kynna sitt verkefni eða átrúnað, vonandi á sem fjölbreyttasta vegu.

Ráðleggingar

Eftirfarandi eru nokkrar spurningar sem gott er að hafa í huga þegar þið farið í rannsóknarvinnuna. Athugið þó að þær eru alls ekki tæmandi og það er margt fleira sem þið megið lesa og skrifa um:

  • Hver var Abraham og hvaða gildi hefur hann fyrir gyðinga?

  • Hver var Móse og hvernig fór hann að því að frelsa Ísraelsmenn?

  • Hvernig breiddist gyðingdómur út og hver er staða hans í dag?

  • Hvernig var komið fram við gyðinga í byrjun 20. aldarinnar og hvernig stóð á því að Ísraelsríki var stofnað?

  • Hvernig er starfi gyðinga á Íslandi háttað?

  • Hver er grunnurinn að trú og kennisetningum gyðinga ? Hver er Guð og hvernig er hann ? Hver er Messías ?

  • Hver eru helstu helgirit gyðingdómsins og hvers eðlis eru þau?

  • Í hvaða meginstefnur skiptist gyðingdómur og hver er munurinn á þeim?

  • Hver eru helstu tákn gyðingdómsins, hvers vegna, hvernig og hvar birtast þau okkur?

  • Hverjir eru helgustu staðir gyðingdómsins og hvers vegna?

  • Hverjar eru helstu hátíðir gyðinga, hvers vegna og hvað gera gyðingar á þeim?

  • Er eitthvað sem einkennir daglegt líf gyðinga og þá hvað?

  • Hvað gera gyðingar á stórviðburðum með fjölskyldu sinni?

Einnig er æskilegt að eftirfarandi atriði eða eitthvað svipað þeim komi fram í kynningum ykkar:

  • Tillögur um hvernig hægt er að koma til móts við gyðinga á Íslandi.

  • Notið gagnrýna hugsun til að skýra hvað ykkur finnst um þá þætti gyðingdóms sem þið hafið verið að læra. Hverju eruð þið sammála ? Er eitthvað sem þið eruð ósammála ?

  • Hafið þið séð áhrif frá gyðingdómi í vestrænni menningu, til dæmis í mannlífi, siðfræði, kvikmyndum, myndlist, bókmenntum eða tónlist? Hvar og hvernig ?

Mat

Þetta er hópverkefni og mun matið að mestu leyti taka mið af því. Niðurstöðurnar sem þið skilið frá ykkur verða því metnar í heild sinni og allir í hópnum fá sameiginlega einkunn. Þar verður tekið mið af hversu vel heimildirnar hafa verið nýttar, hversu skýrt efnið er framsett og hvort framsetningin sé skemmtileg og/eða áhugaverð.

 

Niðurstaða

Að þessu verkefni loknu ættuð þið að vera fróðari um gyðingdóm og þekkja bæði sögur, siði og hluti sem honum tengjast. Með því hafið þið öðlast dýrmæta þekkingu á menningu og átrúnaði milljóna manna um gjörvallann heim. Þekking á siðum og menningu þeirra gerir ykkur kleift að skilja betur tilvísanir til gyðingdóms í bókmenntum, kvikmyndum, tölvuleikjum og myndlist, auk þess sem hún hjálpar þér að eiga góð og skilningsrík samskipti við annað fólk.

Einnig ættuð þið að hafa þjálfast nokkuð í upplýsingaöflun á neti sem og framsetningu á efni með aðstoð upplýsingatækninnar.