Table of Contents Table of Contents
Previous Page  22 / 92 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 22 / 92 Next Page
Page Background

20

Goðsagnir um heimilisofbeldi

Ekkert afsakar ofbeldi á heimili. Margar útskýringar eru notaðar og

yfirleitt í þeim tilgangi að verja þann sem beitir ofbeldinu. Afsakanirnar

hafa því miður oft tilætluð áhrif og eru gjarnan endurteknar svo oft að

þær verða að lífseigum goðsögnum en eru í raun

ranghugmyndir

. Margar

þeirra snúast um hina fullorðnu á heimilinu:

– Það hlýtur að vera eitthvað að henni, annars væri hann ekki svona

afbrýðisamur.

– Hann gerði þetta meðan hann var í áfengi og pillum.

– Hjónadeilur eru einkamál og friðhelgi heimilisins er bundin í stjórnar­

skrá.

Fátíðara er að goðsagnir um heimilisofbeldi snúist um börn. Ef til vill

vegna þess að fólk heldur að þau verði þess ekki áskynja. Goðsagnir um

börn og heimilisofbeldi eru t.d.

– Börnin vita ekkert af þessu; þeim er yfirleitt haldið utan við þetta.

– Börn vilja ekki segja frá ofbeldinu.

– Börnin muna ekkert eftir þessu seinna og þá skaðar það ekki.

Ekkert af þessu stenst eins og nánar verður vikið að í handbókinni.

Erlendar rannsóknir til margra ára hafa sýnt að börn vita um heimilisof-

beldi og þau kvarta yfir því að þekking þeirra og reynsla sé sniðgengin.

Nöturleg dæmi eru um þetta í íslensku skólastarfi (Guðrún Kristinsdóttir,

Margrét Ólafsdóttir og Ingibjörg

H. Harðardóttir

, 2014a; Nanna Þóra

Andrésdóttir, 2014). Sjá ítarlega umfjöllun og frásagnir barna í bókinni

Ofbeldi á heimili. Með augum barna,

frá 2014.

Áhrif heimilisofbeldis á börn

3.2

Áhrif ofbeldis og vanrækslu á börn eru stundum mikil. Hér má nefna

viðvarandi ótta, ógnanir og lífshættu og er þá ekki upptalið (Hornor,

2005). Þó ber að athuga að sum börn virðast takast á við ýmsa þá erfið-

leika sem fylgja slíkri reynslu án þess skaðast til lengri tíma (Edleson,

1999). Reynsla barns af ofbeldi á heimili einskorðast ekki við athafnir

heldur nær hún til upplifana og óbeinna áhrifa sem koma til vegna of-

beldisins, svo sem þess að verða vitni að ofbeldi eða heyra það sem á

gengur (Holden, 2003; sjá nánar í Guðrún Kristinsdóttir, Margrét Ólafs-

dóttir og Ingibjörg H. Harðardóttir, 2014a). Upplifanir eru mismunandi

Áhrif heimilis­

ofbeldis á börn

eru margslungin