Table of Contents Table of Contents
Previous Page  7 / 92 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 7 / 92 Next Page
Page Background

5

Formáli

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn

börnum á rætur að rekja til fullgildingar íslenskra stjórnvalda, árið 2012,

á samningi Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og

kynferðislegri misneytingu barna sem samþykktur var á Lanzarote árið

2007. Samningurinn miðar að því að vernda og styrkja stöðu barna sem

hafa mátt þola kynferðislegt ofbeldi í einni eða annarri mynd. Samn-

ingurinn kallar á greiningu á lögum, verklagi og viðhorfum til meðferðar

mála um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Í kjölfar samningsins gerðu innanríkisráðuneyti, mennta- og menn-

ingarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti með sér samning um verksvið

Vitundarvakningar. Árið 2013 var ákveðið að Vitundarvakningunni yrði

falið víðtækara hlutverk og nái einnig til andlegs og líkamlegs ofbeldis

gegn börnum. Jafnframt var heiti verkefnisins breytt í Vitundarvakning

um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum.

Hlutverk Vitundarvakningar er að kortleggja, samhæfa og stuðla að um-

fangsmiklu forvarnarstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi

aðila, huga að rannsóknum varðandi ofbeldi gegn börnum og stuðla að

aukinni samfélagsvitund ummálaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast

fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslu-

kerfinu sem og almenningi.

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn

börnum gerði samning við Námsgagnastofnun um umsjón með útgáfu

leiðbeiningarrits fyrir skóla til að sporna gegn hvers kyns ofbeldi á

börnum.