Table of Contents Table of Contents
Previous Page  11 / 92 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 11 / 92 Next Page
Page Background

9

1

O

fbeldi er hluti af

samfélagsgerðinni

Ofbeldi er meðvituð valdbeiting sem getur beinst gegn einstaklingi, hópi

manna eða samfélagi. Undir ofbeldi fellur allt slíkt athæfi sem leiðir til

eða er líklegt til að hafa í för með sér skaða, dauða, sálrænt álag eða

skerðingu á þroska eða annars konar skort, hið síðasttalda getur meðal

annars verið afskiptaleysi eða hundsun.

Með ofbeldi gagnvart eigin persónu er átt við sjálfsskaða eða sjálfsvíg.

Ofbeldi milli manna má skipta í valdbeitingu sem nær til nátengdra og

ókunnugra, svo sem innan fjölskyldu eða samfélags. Ofbeldi milli ná-

tengdra er ill meðferð eða misbeiting gegn börnum, ofbeldi milli systk-

ina eða fullorðinna, t.d. hjóna eða para og meðal annars gagnvart öldruð-

um. Síðan má greina á milli ofbeldis milli manna sem á sér stað milli

kunnugra eða ókunnugra. Þar getur verið um að ræða ofbeldi milli barna

og unglinga, ýmsar tegundir árása, auðgunarbrot og ofbeldi á vinnu-

stöðum og öðrum stofnunum.

Ofbeldi er með-

vituð valdbeiting

og undir það fellur

athæfi sem hefur í

för með sér skaða,

dauða, sálrænt álag

eða skerðingu á

þroska