Table of Contents Table of Contents
Previous Page  8 / 92 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 8 / 92 Next Page
Page Background

6

Samkvæmt samningnum tók Námsgagnastofnun að sér umsjón með

gerð umrædds rits, að ráða höfunda, sjá um ritstjórn, yfirlestur, hönnun,

umbrot og prentun. Fékk stofnunin Guðrúnu Kristinsdóttur prófessor

á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Nönnu Kristínu Christiansen

verkefnastjóra á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar til að sjá

um gerð ritsins.

Til lesenda

Umfjöllunarefni þessarar handbókar er ofbeldi sem börn verða fyrir en

markmiðið er að upplýsa kennara og annað starfsfólk skóla um einkenni

og áhrif ofbeldis á börn og að vekja athygli á forvörnum, inngripi og

úrræðum sem eru til staðar til að tryggja sem best velferð nemenda.

Grunnskólinn er eina stofnun samfélagsins sem öllum ber lagaleg skylda

til að sækja og þar er hægt er að ná til allflestra. Þar að auki sækja langflest

börn leikskóla og framhaldsskóla. Samanlagt eru flest börn því a.m.k. 15

ár í skóla og einmitt á þeim árum sem þroski einstaklingsins er talinn

vera mestur. Af þessum ástæðummá fullyrða að áhrif kennara og annarra

starfsmanna skóla á börn og þar með framtíðarsamfélagið séu veruleg.

Það er von okkar að þetta rit verði til gagns.