Table of Contents Table of Contents
Previous Page  13 / 92 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 13 / 92 Next Page
Page Background

11

Hér á landi er stuðst við landslög og alþjóðasamninga sem marka vel

hvað er ásættanlegt og hvað ekki í umgengni við og hegðun gagnvart

börnum (Barnalög, nr. 27, 2003; Barnaverndarlög, nr. 80, 2002; Lög um

samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barns, nr. 19, 2013).

Gerandi og þolandi

1.1

Orðin „gerandi“ og „þolandi“ um ofbeldi í samskiptum fólks eru útbreidd

en notkun þeirra hefur verið gagnrýnd. Þá er meðal annars átt við að

annar aðilinn sé alltaf þolandi og hinn gerandi og að litið sé fram hjá

samskiptaferlinu. Telja má að notkun orðsins „þolandi“ í þessu sambandi

sé villandi og taki þá einstaklinga ekki til greina sem sýna styrk, veita

viðnám við ofbeldinu. Í þeim skilningi séu orðin tvö of almenn. Með

enska orðinu „survivor“ leggja femínistar áherslu á mótspyrnu, þau virku

viðbrögð sem rannsóknir hafa sýnt að sumir „þolendur“ sýna í ofbeld-

isaðstæðum (Guðrún Kristinsdóttir, 2014). Gegnsærra er að nota „of-

beldismaður“ um fullorðið fólk sem beitir ofbeldi. Gagnvart börnum er

rétt að beina athyglinni að hegðun og samskiptum og ræða um börn

sem sýna ofbeldishegðun og börn er verða fyrir ofbeldi. Það er farsælla

að styðja barn, sem beitir ofbeldi, til að snúa hegðun sinni til betri vegar

en að þvinga fram breytingar. Jafnframt er þá líklegra að foreldrar vilji

vinna með skólanum að lausn málsins þar sem barninu er ekki hafnað

heldur óásættanlegri hegðun þess. Svipað er uppi á teningnum varðandi

barnið sem fyrir ofbeldinu verður. Með því að vísa til barns sem þolanda

er hætt við að því sé skipað í hlutverk fórnarlambs sem getur verið

niðurlægjandi og unnið gegn valdeflingu þess.

Lög og alþjóðasamn-

ingar eiga að tryggja

velferð barna

Orðin gerandi og

þolandi geta verið

villandi