Previous Page  19 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 19 / 108 Next Page
Page Background

17

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

Hvað er góð hópvinna?

Nemendur eru eins misjafnir og þeir eru margir og búa yfir ýmsu

sem auðveldar þeim eða torveldar að vinna í hópum. Samvinnu og

hópastarf þarf því að þjálfa markvisst og nemendum þarf að vera

ljóst hvað það þýðir að vera hluti af hópi sem leysir verkefni saman.

Að sjálfsögðu þjálfast samvinna eftir því sem skólagöngunni vind-

ur fram og nemendur eldast og þroskast en þó er ekki úr vegi að

ræða öðru hverju til hvers er ætlast af nemendum þegar þeir vinna

verkefni í hópum og jafnvel getur verið áhrifaríkt að hafa sýnilegt

í kennslustofunni spjald sem minnir nemendur á ábyrgð þeirra í

hópvinnunni. Slíkt er auðvitað enn áhrifaríkara ef nemendur hafa

sjálfir tekið þátt í að móta þær vinnureglur sem þar er að finna.

Gott er að hafa eftirfarandi atriði til viðmiðunar þegar rætt er við

nemendur um samábyrgð og vinnu í hópum.

Einstaklingsábyrgð

Hver og einn ber ábyrgð á sjálfum sér og sínum vinnubrögðum.

Samábyrgð

Hver og einn ber líka ábyrgð gagnvart hinum í hópnum.

Það þýðir að verkefnið er allra og allir þurfa að leggja

vinnu í það.

Vandvirkni

Mikilvægt er að vanda til verka, hvort heldur er við ritun,

myndskreytingu, gagnaöflun eða annað, þannig að allir

í hópnum séu sáttir við útkomuna.

Úthald

Allir í hópnum þurfa að vera virkir á meðan

á vinnunni stendur.

Samhjálp

Nauðsynlegt er að hjálpast að við einstök verk og komast

að samkomulagi um hvernig best sé að framkvæma hlutina.

Virðing

Hópmeðlimir eiga að virða framlag vinnufélaga sinna og

leiðbeina á uppbyggilegan hátt þegar leiðbeininga er þörf.

Yfirsýn

Allir í hópnum þurfa að hafa góðan skilning á því sem felst

í verkefninu og hvernig verkið sækist á hverjum tíma.

Stolt og ánægja

Hver og einn á að geta fundið fyrir stolti yfir vel unnu verki

hópsins þegar verkefninu er lokið.