Previous Page  14 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 14 / 108 Next Page
Page Background

12

Önnur útfærsla

Nota má minnismiða með límrönd í þetta verkefni. Þá skrifa

nemendur

á hvern

miða eitt atriði sem þeir telja sig kunna varðandi viðfangsefnið eða myndu vilja

vita og hengja svo upp á svæði merkt

K

og

V

. Svo má láta nemendur flokka mið-

ana eftir efnislegum tengslum. Við verkefnislok skrifa nemendur svo á miða það

sem þeir hafa lært og hengja upp á svæði merkt

L

.

Örfundir

Örfundir nefnist umræðuaðferð þar sem nemendahópar taka allir fyrir sama

efni en koma sér saman, hver hópur fyrir sig, um spurningu sem hópinn langar

að fá svör við. Að því búnu fara allir um stofuna og ræða við aðra nemendur og

skiptast á upplýsingum um efnið.

Dæmi um svona örfundi gæti verið úr kennslustund um

hafið

. Eftir kveikju eða

innlögn kennarans og skiptingu í þriggja manna hópa á hver hópur að koma sér

saman um eitt atriði sem allir í hópnum myndu vilja vita um hafið. Mikilvægt

er að spurningarnar sem bornar eru upp séu tiltölulega opnar og bjóði upp á

vangaveltur og leit. Spurningarnar sem út úr þessu koma gætu verið um hvað

sem er sem tengist hafinu. – Hve djúpur er sjórinn þar sem hann er dýpstur í

heiminum? Hvar lifa sæhestar? Hvers konar sjávardýr er líklegt að finna niðri við

hafsbotninn? Hversu langan tíma tekur að synda yfir Ermarsund? Hvaða munur

er á sæljónum og rostungum? Hver eru helstu heimshöfin? – Nemendur fá vissan

tíma, allt að sjö mínútum, til að ganga á milli og spyrja hver annan sinnar spurn-

ingar og skrá niður þau svör sem þeir fá. Að loknum þessum tíma eiga hóparnir

að hittast aftur og fá stutta stund til að bera saman svörin sem tókst að afla.

Í lokin fer kennarinn yfir spurningarnar og svörin með hópunum og skráir eftir

atvikum athyglisverðar niðurstöður.