Previous Page  13 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 13 / 108 Next Page
Page Background

11

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

Hægt er að láta staka nemendur eða hvern nemanda í bekk fylla dálkana þrjá en

KVL má líka nota í hópum eða heilum bekkjum. Kennari fyllir þá með eða eftir

nemendum fyrstu dálkana tvo á skjá eða stóru blaði. Í lokin má svo skrá með

nemendum það sem þeim finnst þeir hafa lært af verkefninu.

Í lokin: Tókst þér að læra það sem þig langaði? Var fyrri þekking þín rétt?

KVL

Viðfangsefni:

Danmörk

Nafn: Dags:

Fylltu út tvo fyrstu dálkana (K og V) áður en þú hefst handa. Í lok verkefnisins skráir þú inn í þriðja dálkinn (L).

K

ann

Vil

V

ita

Hef

L

ært

• Rétt hjá okkur á korti

• Er eitt af Norður-

löndunum

• Töluð danska

• Danir búa þar

• Drottning

• Mjög heitt á sumrin

• Lególand

• Tívolí

• Litla hafmeyjan

• Hvað búa margir þar?

• Eru dýragarðar

í Danmörku?

• Hvað heita frægustu

fjöllin?

• Eru einhverjir frægir

Danir til?

• Hvernig er fáninn?

• Hvaða matur er

sérstaklega danskur?

• Hvernig eru jólin

í Danmörku?

• Hvað er landið stórt?

• Hvað heitir þjóðhöfð-

inginn?

• Meira en 5.000.000 íbúar

• 3 eða 4 dýragarðar, um einn er bara hægt

að keyra

• Það eru engin fjöll! Hæsti hóllinn heitir

Himmelbjerget!

• Emelie de Forest sem vann Eurovision 2013

• Rauður með hvítum krossi

• Danir borða mjög mikið svínakjöt

• Jólin eru svipuð og hér á Íslandi og haldin

hátíðleg 24. desember eins og hér

• Landið er pínulítið, bara 43.100 km2 og kæmist

fyrir meira en tvisvar sinnum á Íslandi

• Þar eru notaðir danskir peningar sem heita

kroner (krónur)

• Danskir jólasveinar eru kallaðir nissar og

eru pínulitlir

• Í Danmörku er drottning og forsætisráðherra en

enginn forseti og enginn kóngur, bara prinsar.

Drottningin heitir Margrét Þórhildur.

• Litla hafmeyjan er ævintýri eftir H.C. Andersen

• H.C. Andersen er frægur danskur rithöfundur

sem samdi mörg ævintýri sem við þekkjum,

eins og Ljóta andarungann, Litlu stúlkuna með

eldspýturnar og Prinsessuna á bauninni.

Hann er löngu dáinn.

• Danmörk liggur að Þýskalandi

• Hægt er að fara til Svíþjóðar yfir brú eða

með báti og tekur bara nokkrar mínútur

• Hej! Jeg hedder … Hvad hedder du?