Previous Page  24 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 24 / 108 Next Page
Page Background

22

Góðar spurningar

Allt frá tímum Sókratesar hafa kennarar notað samræður í kennslu. Gjarn-

an er opnað fyrir umræður með því að spyrja opinna spurninga og fá við-

brögð nemenda og oft eru slíkar spurningar fyrirtaks kveikja í kennslu.

Mikilvægt er að hafa í huga að öll svör eiga rétt á sér og svonefnd röng svör

leiða oft til umræðna sem varpa ljósi á málin og leiða fram rétta svarið

á endanum. Þannig getur umræða um svör, sem strangt til tekið teljast

röng, vakið dýpri skilning og þekkingu en rétt svar sem kemur strax.

Flokkunarkerfi spurninga

Spurningar sem bornar eru upp í kennslustundum eru oftar en ekki þekk-

ingarspurningar. Til þess að mæta þessu, draga úr einsleitni og dýpka þekkingu

nemenda getur verið hjálplegt að hafa flokkunarkerfi Bloom

6

til hliðsjónar.

Þennan lista, ásamt dæmum um spurningar í ákveðnu viðfangsefni

má finna á vef bókarinnar til frekari glöggvunar.

Þögn og umhugsun

Þögn í miðjum umræðum

þarf ekki að vera slæm. Eftir

að nemandi hefur tjáð sig

veitir þögnin öðrum nem-

endum tækifæri til að leggja

eitthvað til málanna og ef

kennarinn dregur sig aðeins

í hlé ræða nemendur oftar

saman innbyrðis.

Kennari sem gefur nemend-

um ekki nægjanlegan tíma

til umhugsunar endar oftast

á að svara spurningu sinni

sjálfur. Því er mikilvægt að

gefa nemendum nægan

tíma til umhugsunar eftir að

spurningu hefur verið varp-

að fram.

7

Gerð spurningar Lykilorð

Minni/þekking

Hver? Hvað? Hvar? Hvenær? Hvers vegna?

Skilgreindu, lýstu, útskýrðu.

Skilningur

Berðu saman … og …! Hver er munurinn á …

og …?

Hver eru aðalatriðin? Lýstu því sem átti sér stað.

Hver eru tengslin?

Beiting

Hvaða reglu getur þú beitt (til dæmis í

stærðfræðidæmi)?

Flokkaðu (til dæmis lífverur eftir flokkunarkerfi

Carl von Linné)

Greining

Hvað getur þú nefnt sem styður …?

Hvað getum við ályktað út frá þessum

upplýsingum?

Hvað gæti verið að gerast? Hvað leggur þú til?

Nýsköpun

Hvernig væri hægt að leysa þessa þraut?

Spáðu fyrir um framtíðina; ef … þá …

Hvað gæti gerst ef …? Hvernig má bæta

tilraunina?

Mat

Taktu afstöðu til … Hver er þín skoðun?

Hvað finnst þér um …? Hvers vegna?

Hver eru rökin og mótrökin? Hvað finnst þér?