Previous Page  21 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 21 / 108 Next Page
Page Background

19

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

Kveikjur

Í upphafi kennslustundar ermikilvægt aðná strax tengslumviðnemendur

því áhugi nemenda leikur veigamikið hlutverk í námi þeirra.

Kveikjur (e.

hooks

) eru til þess fallnar að vekja áhuga nemenda

og tengja viðfangsefnið og verkefnin menningu þeirra og

reynsluheimi. Óspennandi nálgun getur drepið niður

áhuga nemenda og skiptir þá litlu hversu áhugavert við-

fangsefnið kann að vera. Hægt er að fanga athygli nem-

enda á fjölbreyttan máta og kennari sem bregður út af

vananum á einhvern hátt í upphafi kennslustundar

nær strax athygli nemendahópsins. Hann getur til að

mynda mætt í búningi eða með hatt í kennslustund

eða spilað lag, ef ekki sjálfur á gítar eða ukulele,

blokkflautu eða annað heppilegt hljóðfæri sem hann

ræður vel við, þá af stafrænum miðli, því sem hendi er

næst. Ef vekja á áhuga nemenda á tilteknu viðfangsefni

má hefja kennslustundina á því að sýna þeim eitthvað

óvænt eða óvenjulegt því tengt. Einnig er hægt að hita upp

fyrir kennslustund í vændum með því að sýna nemendum

kveikju í lok tíma.

Dæmi um kveikjur sem koma á óvart

Kennslustund um rafmagn hefst á

því að spilað er lagið Thunder með

rokksveitinni AC/DC án þess að

geta um nafn hljómsveitarinnar

og heiti lagsins. Tónlistin er spiluð

hátt og nemendur beðnir að velta

því fyrir sér hvernig lagið tengist

viðfangsefni dagsins.

Kennslustund um liðdýr:

Kennari sýnir stutta mynd

á YouTube af tarantúlu og

sporðdreka að slást. Hvort

dýrið haldið þið að vinni?

Kennslustund um innviði jarðar: Nemendur

fá allir eina Djúpu, sælgætisskúlu frá Freyju,

eða jafnvel Mozart-kúlu ættaða frá Salzburg.

Þeir eiga að skoða kúluna, skera hana í sund-

ur og velta fyrir sér hliðstæðu laga í kúlunni

við jarðskorpu, möttul og kjarna.