Previous Page  17 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 17 / 108 Next Page
Page Background

15

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

myndir af viðfangsefnum hópanna, til dæmis flokkum lífvera eða þjóðlöndum.

Einnig eru til ýmiss konar smáforrit sem hægt er að láta búa til hópa og margir

kennarar þegar farnir að nýta sér tæknina við þetta. Þegar slík forrit eru notuð

er hægt að varpa hópalistunum upp á tjald þannig að skiptingin tekur bókstaf-

lega ekki nema nokkrar sekúndur og hægt að vinda sér strax í sjálfa vinnuna.

Stundum velur kennarinn svo nemendur saman í hópa eins og honum sýnist að

fari best. Ekkert er athugavert við það og í raun heppilegt að hafa þennan háttinn

á öðru hvoru, að nemendur læri líka að taka við og fylgja beinum fyrirmælum

frá kennara um hlutverkaskipan og samvinnu. Á fylgivef bókarinnar er að finna

nokkur vísukorn og myndir til að prenta út og nýta við hópaskiptingar. Þar eru

líka nánari upplýsingar um smáforrit sem hér voru nefnd.

Hani, krummi, hundur, svín,

stinnur mjög til ferðalags.

Litla Jörp með lipran fót

hestur, mús, tittlingur.

Galar, krunkar, geltir, hrín,

gneggjar, tístir, syngur.

labbar götu þvera.

Hún mun seinna á mannamót

mig í söðli bera.

Suður á land hann feitur fór,

fallegur á tagl og fax.

Rauður minn er sterkur, stór