Previous Page  18 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 18 / 108 Next Page
Page Background

16

Hlutverkaskipting og ábyrgð í hópavinnu

Stundum eru verkefni hópa einföld eða liggja ljós fyrir og þá geta fyrirmæli

kennara til þeirra einfaldlega verið þau að hefjast handa. Nemendur eiga oftast

að hjálpast að og oft tekur einn að sér að skrifa niður svör, úrlausnir eða niður-

stöður. Einnig má sammælast um að skiptast á. Þetta gengur oft prýðilega og ef

hópurinn er ekki of stór má gera ráð fyrir að nemendur leggi allir sitt af mörk-

um. Við aðstæður þar sem samvinnunni sjálfri er ætlað að skipa stóran sess og

verkefnin ná yfir lengri tíma en eina eða tvær kennslustundir er þó oft gott að

hver og einn nemandi í hópi hafi skýrt skilgreint hlutverk þótt allir séu að vinna

að sama verkefni. Þannig getur einn verið ritari, annar tímavörður, þriðji séð

um að sækja gögn og efni (þann mætti kalla aflakló eða safnara) sé þess þörf og

fjórði gegnt hlutverki stjórnanda sem heldur utan um vinnuna og skipuleggur

jafnvel hverjir gera hvað umfram skilgreind hlutverk. Að sjálfsögðu vinna allir

saman að sjálfu verkefninu en með því að skilgreina hlutverk og skipta verkum

á þennan hátt eykst tilfinning nemenda fyrir ábyrgð sinni á gangi verkefnisins.

Þegar verkefnið spannar margar kennslustundir yfir nokkurra daga tímabil þarf

helst að gæta þess að hópmeðlimir fái allir tækifæri til að spreyta sig á öllum hlut-

verkum. Sá sem var tímavörður í fyrsta tímanum, gæti orðið ritari í næsta tíma

og þar fram eftir götum. Til þess að hlutverkin séu vel sýnileg er gott að skrifa

þau á spjöld og hengja um háls nemenda, næla með nafnspjaldanælu í barminn

eða hafa á borðinu fyrir framan vinnusvæði hvers og eins. Eins er gott að setja

nemendahópana upp í töflu þannig að hlutverkin séu sýnileg öllum og sjá megi

skipulagið fram í tímann.

Þegar skipt er í hópa með hlutverkaskipan sem þessa í fyrsta skipti þarf að gæta

þess að nemendur valdi hlutverkunum. Þannig mætti velja nemanda sem hefur

góða skipulagshæfileika í hlutverk stjórnanda í fyrsta tíma. Ekki þarf að hand-

velja nemendur í hlutverk eftir það enda eiga hlutverkin að vera áskorun fyrir

nemendur.

1. tími

2. tími

3. tími

4. tími

Anna

Stjórnandi

Tímavörður

Ritari

Aflakló

Guðmundur

Aflakló

Stjórnandi

Tímavörður

Ritari

Andri

Ritari

Aflakló

Stjórnandi

Tímavörður

Ólöf

Tímavörður

Ritari

Aflakló

Stjórnandi