Ofbeldi_gegn_börnum - page 68

66
Annað efni
Að vaxa úr grasi.
Heildstætt kennsluefni fyrir 1. til 5. bekk með áherslu
á félags- og tilfinningaþroska, samvinnu, sjálfstraust og ákvarðanatöku.
Námsgagnastofnun.
Krakkarnir í hverfinu.
Brúðuleiksýning fyrir börn í öðrum bekk grunn-
skóla. Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi.
.
Vinátta.
Forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla og yngstu bekki
grunnskóla. Barnaheill gefur út.
Vinir Zippýs.
Námsefni fyrir fimm til sjö ára börn um ráð til glíma við
erfið­leika í daglegu lífi, tilfinningar og aðstoð við aðra. Embætti land­læknis.
Þetta er líkami minn.
Bókin er skrifuð til að aðstoða fullorðna og börn
á leikskólaaldri við að ræða saman um ofbeldi á opinn og óþvingaðan
hátt. Barnaheill gefur út og hægt er að panta bókina þar.
Kennsluaðferðir
Bókmenntir.
Þegar lesnar eru sögur eða brot úr sögum sem fjalla um
margvísleg samskipti er tilvalið að ræða efnið sérstaklega með tilliti til
ofbeldis af ýmsum toga, þar á meðal útilokun, umtal, vanrækslu, vanmat
og líkamlegt ofbeldi. Dæmi um spurningar: „Hvernig líður henni/hon-
um, hvers vegna, hvað finnst ykkur að ætti að gera, haldið þið að svona
gerist í alvörunni, af hverju
.“? Nota má fjölmargar bækur til að ná
þessu markmiði, svo sem:
Öskubusku
,
Gúmmí Tarsan
,
Ávaxtakörfuna
,
Mörtu smörtu
,
Bróðir minn Ljónshjarta
, ýmsar þjóðsögur, t.d. þar sem
Ása, Signý og Helga koma fyrir
.
Leikræn tjáning.
Nemendum skipt í litla hópa. Hóparnir draga miða
með heitum á verkefnum og leika það án orða eða gera myndastyttu.
Dæmi: Að skilja út undan. Að vera tillitssamur. Góðir vinir. Hinir giska
á hvað er verið að túlka. Umræður.
Staðalmyndir.
Bókmenntir, kvikmyndir, auglýsingar og fréttir má nota
til að hjálpa börnum að skoða staðalmyndir kynja, t.d. má hvetja þau til
að prófa að skipta um kynferði persóna sem fjallað er um til að athuga
hvort það virkar eða ekki og hvers vegna.
1...,58,59,60,61,62,63,64,65,66,67 69,70,71,72,73,74,75,76,77,78,...92
Powered by FlippingBook