Ofbeldi_gegn_börnum - page 65

63
Fyrir yngri börn
10.1
Öryggishringurinn
Coppard (2008) lýsir nokkrum verkefnum sem nota má í forvörnum þar
á meðal öryggishringnum og aðferðum til að leggja mat á líðan barna.
Mikilvægt er að hvert barn upplifi öryggisnet sitt, þ.e.a.s. til hvaða fólks
það getur leitað til um ráð og aðstoð. Öryggishringurinn er verkefni
sem gott er að vinna með yngstu börnunum en hann er einnig hægt
að laga að þörfum eldri barna. Ráðlegt er að börnin geri öryggishring
í upphafi hvers skólaárs. Hvert barn fær mynd af sjálfu sér sem búið er
að líma í miðju hringlaga forms. Lagt er til að kennarinn byrji á því að
segja nemendum hverjir hafi verið í öryggishringnum hans þegar hann
var lítill og hvers vegna, t.d. mamma, pabbi, amma, frændi, kennarinn,
vinur hans, stuðningsfulltrúi og nágranni. Kennarinn getur svo beðið
börnin að segja frá því hverjir séu í hringnum þeirra og rætt um mikil-
vægi þess að eiga öryggisnet sem nær til þeirra staða sem barnið dvelur
á. Loks eru nöfnin sem börnin hafa valið í öryggishringinn sinn skrifuð
umhverfis myndina á skífunni. Gott er að vísa til öryggishringsins þegar
á þarf að halda.
Mat á líðan barna
Eitt af því sem kennari getur gert til að fylgjast með líðan nemenda er að
leggja reglulega kannanir fyrir þá. Fyrir yngstu börnin er einfalt að vera
með einfalda mynd af þremur andlitum í röð, það fyrsta er brosandi og
glatt, annað er hlutlaust og það þriðja er leitt. Kennarinn biður barnið að
bregðast við fullyrðingummeð því að benda á eða merkja við viðeigandi
andlit. Kennarinn notar fullyrðingar miðað við aðstæður hverju sinni. Hér
eru nokkur dæmi: „Mér finnst gaman í leikskólanum/skólanum.“ „Það er
gaman að vera úti að leika/í frímínútum.“ „Ég á marga vini í skólanum.“
Á svipaðan hátt má kanna líðan eldri nemenda en nota í staðinn kvarða,
t.d. frá 1–5, sem nemendur merkja við. Leita þarf nánari skýringa þegar
svör nemenda gefa vísbendingu um vanlíðan og þá er gott að ræða um
hvað hægt sé að gera til að bæta ástandið.
1...,55,56,57,58,59,60,61,62,63,64 66,67,68,69,70,71,72,73,74,75,...92
Powered by FlippingBook