Ofbeldi_gegn_börnum - page 57

55
Það getur verið hjálplegt að vekja athygli barnsins á því að fleiri
börn hafi svipaða reynslu. Einnig skiptir máli að draga fram
styrkleika barnsins. Þú þarft að vera opin(n) og þreifa þig áfram
með samtalið.
5.
Stjórn/skipulag.
Barnið þarf að finna að það er skipulag á sam-
talinu sem þú stýrir. Markmið samtalsins er ekki síst að barnið
fái staðfestingu á því að þú berir umhyggju fyrir því, að þú hafir
séð það og heyrt og að barnið fái fulla vissu fyrir því að þú hafir
hlustað á það, skilið það og viðurkennt það sem það hafði að segja.
Það sem á að gera – það sem
8.1
ber að forðast
King (1999) bendir á nauðsyn þess að kennari sem ræðir persónuleg
mál við nemanda þekki sjálfan sig, sé meðvitaður um eigin fordóma og
hugmyndir sínar, t.d. um staðalmyndir og takmarkanir. Hann verður að
tryggja að viðtalið snúist eingöngu um velferð barnsins en ekki hans
eigin þarfir. Hún varar kennara við því að tala of mikið í viðtölunum
heldur leyfa þögninni að lifa og forðast að skipta um umræðuefni. King
setur fram tvo lista, annan yfir atriði sem kennarinn þarf að hafa til
hliðsjónar í viðtali við nemandann, hinn með atriðum sem hann ætti að
forðast. Listinn birtist hér nokkuð aðlagaður.
Sjálfsþekking
kennara er mikilvæg
1...,47,48,49,50,51,52,53,54,55,56 58,59,60,61,62,63,64,65,66,67,...92
Powered by FlippingBook