Ofbeldi_gegn_börnum - page 51

49
ekki skyldur sínar og ábyrgð sem uppalendur þarfnast þeir leiðbeininga.
Bæklingurinn
Við og börnin okkar
hefur að geyma leiðbeiningar til
foreldra á nokkrum tungumálum, sjá aftast um vefslóðir.
Samkvæmt athugunum sem gerðar hafa verið á barnavernd og skóla-
starfi virðist vanta nokkuð upp á samvinnu á milli þessara aðila (Anni
G. Haugen, 2008).
Tilkynningarskylda til
7.2
barnaverndar
Hér er rétt að geta um lagaákvæði um tilkynningarskyldu vegna barna
og unglinga. Barnaverndarlög ná til barna að 18 ára aldri. Um tilkynn-
ingarskyldu almennings segir þar:
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarnefndar ef þeir hafa ástæðu
til að ætla að barn:
a. búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
b. verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
c. stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu (Barnaverndarlög
nr. 80, 2002,16. gr.).
Í sömu grein kemur fram að hverjummanni sé skylt að gera barnavernd
viðvart, ef ástæða er til að ætla að heilsu eða lífi ófædds barns sé stefnt
í hættu með líferni þungaðrar konu, eða með því að þunguð kona er
beitt ofbeldi eða ef ástæða er til að ætla að svo sé. Greinin getur vísað
til aðstæðna elstu nemenda, t.d. þar sem um alvarlegan áfengis- eða
vímuefnavanda er að ræða.
Sérstök tilkynningarskylda hvílir á þeim sem hafa afskipti af börnum
Hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málum
barna eða þungaðra kvenna og verður var við aðstæður eins og lýst er
í 16. gr. er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd (Barnaverndarlög
nr. 80, 2002,17. gr.).
Í greininni eru tilgreindar margar fagstéttir sem ber sérstök skylda til að
fylgjast með hegðun, uppeldi og aðbúnaði barna, meðal annars kennarar,
námsráðgjafar, stjórnendur og starfslið skóla. Segir þar að þeim sé skylt
Barnaverndarlög
kveða á um tilkynn-
ingarskyldu þeirra
sem hafa afskipti af
börnum
1...,41,42,43,44,45,46,47,48,49,50 52,53,54,55,56,57,58,59,60,61,...92
Powered by FlippingBook