Ofbeldi_gegn_börnum - page 55

53
8
Viðtöl við börn
Erfitt er að gefa algildar leiðbeiningar um hvernig kennarar og aðrir
starfsmenn skóla eiga að ræða við börn sem þeir telja að búi við ofbeldi.
Fátt vegur þyngra en að barnið treysti því að viðmælandinn vilji því
aðeins það besta. Góð fagleg þekking og leikni getur skipt sköpum um
árangur en kennari, sem ekki hefur sótt sérstök námskeið, ætti að
treysta sínu hyggjuviti og leita ráða hjá öðrum. Ef nemandi gefur til
kynna að hann búi við einhvers konar ofbeldi er brýnt að kennarinn
haldi ró sinni, forðist að kveða upp dóm, láti barnið vita að það fái hjálp
og eftir atvikum að þetta verði rætt betur um leið og færi gefst. Kennar-
inn gerir því næst ráðstafanir til að finna tíma og stað þar sem hann
getur rætt við nemandann í einrúmi. Því betur sem kennarinn undirbýr
sig því betra.
Það fer eftir eðli málsins í hverju undirbúningur felst en oft þarf að afla
upplýsinga, ígrunda nálgun og markmið fundarins og stilla hugann. Ef
líkur eru á að máli verði vísað til barnaverndar er hlutverk kennarans
fyrst og fremst að hlusta á nemanda og gefa honum upplýsingar en ekki
að rannsaka eða finna lausnir. Sé aftur á móti um ofbeldi að ræða sem
Góð fagleg þekking
og leikni getur skipt
sköpum um árangur
1...,45,46,47,48,49,50,51,52,53,54 56,57,58,59,60,61,62,63,64,65,...92
Powered by FlippingBook