Ofbeldi_gegn_börnum - page 43

41
6
Forvarnir í skólastarfi
Forvörnum er oft skipt í þrjú stig þar sem hið fyrsta eru almennar
forvarnir semmiða að því að forða því að vandi komi upp. Mismunandi
er hve víðtækt er litið á þetta. Til dæmis má segja að aðgerðir stjórnvalda
sem draga úr örbirgð ákveðinna hópa, menntastefna sem stuðlar að
aukinni menntun barna og unglinga séu forvarnir. En almennt er
forvarnahugtakið ekki skilgreint svo vítt hér á landi.
Aðgerðir á fyrsta stigi beinast að almenningi án skilgreinds vanda. Í
skólum felast þær í sívirkri skólastefnu, fræðslustarfi, kennslu og upplýs-
ingum. Dæmi um slíkt eru starfs- og viðbragðsáætlanir um áföll og einelti,
foreldrafræðsla, mannréttindakennsla, samskiptaþjálfun, vinaverkefni
og foreldrasamstarf (Nanna Kristín Christiansen, 2011).
Þeir sem rannsakað hafa tilhögun forvarnarfræðslu telja að hún ætti að
vera þáttur í skólanámskrá (Ellis, Stanley og Bell, 2006). Tryggja þurfi
að skilaboðin séu ekki útvötnuð, svo sem að þeir sem annist fræðsluna
séu ómyrkir í máli um bakgrunn vandans, t.d. að heimilisofbeldi byggist
á kynjamisrétti. Einnig sé nauðsyn að kennarar af báðum kynjum komi
að fræðslunni.
Fyrsta stig forvarna
beinist að almenn-
ingi án skilgreinds
vanda, annað stig
að áhættuhópum
og þriðja stig felst
í meðferð eða
inngripi
1...,33,34,35,36,37,38,39,40,41,42 44,45,46,47,48,49,50,51,52,53,...92
Powered by FlippingBook