Ofbeldi_gegn_börnum - page 36

34
Hvernig birtist einelti?
4.1
Einelti getur birst á ýmsan hátt, svo sem svipbrigði, glott, augnaráð,
baktal, ljót orð, uppnefningar, háð, fliss, niðurlægjandi athugasemdir,
afskiptaleysi, útilokun, skeytingarleysi um skoðanir viðkomandi, sögu-
sagnir, lygar, andleg kúgun, þvingun, líkamsmeiðingar, skemmdir og
þjófnaður á eignum viðkomandi. Í framhaldsskólum er einelti mest af
andlegum og félagslegum toga, grín er gert að samnemendum, beitt er
hunsun, höfnun, baktali, hótunum og óþægilegum og niðurlægjandi
athugasemdum. Samskiptatækni í ýmsum myndum er einnig mikið
notuð þegar einelti er beitt (Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, Sif Einars-
dóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir, 2007).
Í erlendum rannsóknum á einelti í framhaldsskólum kemur fram að
kennarar sýna einnig eineltishegðun og um fimmti hluti nemenda taldi
sig hafa orðið fyrir einelti frá kennurum. Algengast var að kennarar
gerðu grín að nemanda eða hæddu hann (El Khouri og Sundell, 2005).
Skilgreining umboðsmanns barna á einelti er eftirfarandi:
„Einelti er niðurlægjandi áreitni eða ofbeldi, andlegt eða líkamlegt sem
stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að einstaklingi sem tekst ekki
að verja sig. Einelti felur í sér að einstaklingur er tekinn fyrir með sí­
endur­tekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum og sögusögnum,
and­legri kúgun og hótunum af ýmsu tagi, líkamlegri misbeitingu, félags-
legri höfnun eða markvissri útskúfun.“ (Umboðsmaður barna, 2014a.)
Samkvæmt skilgreiningunni þurfa eftirfarandi þættir að vera til staðar
svo atferlið teljist vera einelti:
Það er til þess fallið að valda vanlíðan, sársauka eða ótta hjá þeim
sem atferlið beinist að.
Það er ekki einstaka atburður heldur síendurtekið mynstur yfir lengri
tíma.
Sá sem fyrir atferlinu verður á erfitt með að verjast.
Þetta má aldrei skilja sem svo að atferlið sé ekki aðfinnsluvert nema því
aðeins að öll atriðin séu til staðar. Þó oftast sé talað um einelti gagnvart
ein­staklingum geta einstaka hópar einnig orðið fyrir einelti eins og
bragga­börnin í Höfðaborg fengu að kynnast á sjötta áratugnum:
Einelti birtist í
mörgum myndum
Þrír þættir þurfa
að vera til staðar
til að hægt sé að
skilgreina atferli
sem einelti
1...,26,27,28,29,30,31,32,33,34,35 37,38,39,40,41,42,43,44,45,46,...92
Powered by FlippingBook