Ofbeldi_gegn_börnum - page 28

26
Þessi tegund valdbeitingar hefst oft með því að ofbeldismaður kemur
vinsamlega fram við barn. Hluti af þeirri tælingu er að fá barnið til að
þegja yfir ofbeldinu, t.d. með umbun. Þetta leiðir til þess að ofbeldið fer
dult. Sá sem tælir barnið gefur sér oft góðan tíma til að kynnast því og
ná trausti þess. Hann getur því orðið mikilvægur í lífi barnsins. Það er
brýnt að skilja þetta ferli til að geta bundið endi á ofbeldið (Regeringen,
2011). Ef ofbeldið heldur áfram, sem virðist algengt, getur það þróast yfir
í valdbeitingu (Miller-Perrin og Perrin, 2007). Þar koma meðal annars
til yfirlýsingar um að ef barnið segi frá muni ofbeldismaðurinn deyja,
fara í burtu eða jafnvel lenda í fangelsi.
Dæmi um skammtímaáhrif
kynferðisofbeldis
Dæmi um langtímaáhrif
kynferðisofbeldis
óeðlileg kynferðisleg hegðun
þunglyndi
streitueinkenni
kvíði
erfiðleikar með svefn
hegðunarvandkvæði
hegðunar- og tilfinningavandi
heilsufarsvandi, svo sem
krónískir verkir og offita
líkamleg áhrif, t.d.
maga- og höfuðverkur
erfiðleikar við að mynda
náin tengsl við aðra
misnotkun fíkniefna eða áfengis
Ung börn sýna einbeitingarleysi en námsörðugleikar koma fram á öll-
um skólastigum. Sum sýna ekki einkenni, a.m.k. ekki til skamms tíma.
Afleiðingar kynferðisofbeldis fyrir barn eru þó yfirleitt miklar og fylgja
oft einstaklingnum um aldur og ævi.
Á síðari árum hefur athygli manna beinst að blekkingum, gjöfum og
tælingu, þar sem upplýsingatækni er notuð í kynferðislegum tilgangi til
að misnota börn. Um það er fjallað síðar í ritinu.
Talsvert hefur verið fjallað um kynferðisofbeldi opinberlega hér á landi
á undanförnum árum. Það er þó ekki algengasta gerð illrar meðferðar
sem tilkynnt er til barnaverndarnefnda (sjá Barnaverndarstofa (2013)
undir liðnum „Útgefið efni“). Ástæður þessa geta verið nokkrar og ein
er trúlega sá rammi sem settur var um rannsóknir á kynferðisbrotum,
meðal annars með stofnun Barnahúss. Hér er því miður engin slík sér-
hæfð miðstöð fyrir aðra illa meðferð á börnum þótt þörfin sé vissulega
Áhrif kynferðis­
ofbeldis á börn
til lengri og
skemmri tíma
1...,18,19,20,21,22,23,24,25,26,27 29,30,31,32,33,34,35,36,37,38,...92
Powered by FlippingBook