Ofbeldi_gegn_börnum - page 24

22
Andlegt ofbeldi er það form ofbeldis gegn börnum sem einna erfiðast er
að skilgreina og greina. Áhrifin á barnið sjást fyrst og fremst í:
slakri eða brotinni sjálfsmynd barns
vantrú á eigin getu
Algengustu andlegar afleiðingar eru háðar aldri að hluta til en geta
birst sem samskiptavandi, erfiðleikar með vinatengsl, skert félagsfærni,
depurð, að draga sig í hlé, lágt sjálfsmat, námsvandi og margvísleg tilf-
inninga- og hegðunarvandamál (Miller-Perrin og Perrin, 2007). Einnig
er verkkvíði, skoðanaleysi, viljaleysi og hlédrægni. Andlegu ofbeldi er
stundum beitt einu eða að það samtvinnast öðru, t.d. fylgir hunsun oft
líkamlegu ofbeldi og vanrækslu.
Andlegt/tilfinningalegt ofbeldi helst oft í hendur við aðra illa meðferð.
Afleiðingar birtast í tilfinninga- og hegðunarvanda og þessi börn glíma
við marktækt fleiri slík vandkvæði en önnur. Kennarar þekkja yfirleitt
vel til ýmissa tegunda hegðunarerfiðleika og þess vegna eru þeir ekki
taldir upp hér. Hér sem annars staðar þarf að hafa í huga að einkenni
sem hér var lýst geta stafað af öðru en andlegu ofbeldi.
Einstaklingar sem hafa verið beittir andlegu ofbeldi virðast oft glíma
við afleiðingarnar einnig á unglings- og fullorðinsárum. Samanborið
við aðra illa meðferð á börnum er talið að andlegt ofbeldi spái sterkast
fyrir um sálræna erfiðleika síðar í lífinu, t.d. þunglyndi, lítið sjálfstraust
. Erfitt getur reynst að greina andlegt ofbeldi og er eitt merki um
það að oft skipta barnaverndaryfirvöld sér ekki af ofbeldi af þessu tagi
(Crittenden, Claussen og Sugarman, 1994). Þetta er alvarlegt því að
andlegt ofbeldi hindrar að barn vaxi og dafni. Tekist er á um það hvort
skilgreina skuli andlegt eða tilfinningalegt ofbeldi út frá afleiðingum á
barnið eða hvort miða eigi við hegðun þess sem því beitir. Skilgreining
út frá afleiðingum kemur í veg fyrir að gripið sé inn í áður en áhrifin
koma fram. Nokkur samstaða er um að skilgreina andlegt/tilfinningalegt
ofbeldi fyrst og fremst út frá hegðun þess sem því beitir, þó að alltaf þurfi
að hafa afleiðingar í huga líka (Miller-Perrin og Perrin, 2007).
Eftir hverju gæti kennari tekið?
Við sjáum á ofangreindum lýsingum á einkennum hjá börnum sem búa
við andlegt ofbeldi að þau eru misjafnlega augljós. Sum börn verða upp-
stökk og jafnvel árásargjörn en önnur draga sig inn í skel. Til að greina
merki um ofbeldi af þessu tagi er gagnlegt að taka eftir hegðun foreldra
en það krefst þess að starfslið skóla eigi í beinum og reglubundnum
Skeytingar- eða
skilningsleysi og
áfellisdómar geta
verið merki um
andlegt ofbeldi
gegn barni
1...,14,15,16,17,18,19,20,21,22,23 25,26,27,28,29,30,31,32,33,34,...92
Powered by FlippingBook