Verkefni:
verkefni 1
Verkefni 2

Ítarefni:
Áhrif fjölmiðla
Breytingar á ...
Einkatölvan
Er fylgst með okkur?
Fjölmiðlar
Fréttir og viðmið
Fréttir segja ...
Í fréttum er ...
Gagnvirkni og
sýndarveruleiki

Hvað er frétt?
Netið
Notkun upplýsinga
Sigur tölvunnar
Skráning og
notkun upplýsinga

Krækjur

 

  Sjálfsmyndin Réttindi og skyldur Hverjir ráða? Samastaður ... Upplýsingasamfélagið
XUpplýsingasamfélagið
  Skráning og notkun upplýsinga
 

Skráning upplýsinga eykst stöðugt án þess að fólk geri sér grein fyrir því. Eitt dæmi er þegar þú átt rafræn samskipti við aðra, heimsækir heimasíður eða skrifar einhverjum rafrænan póst. Hægt er að rekja samskiptin á sama hátt og hægt er að nota hlerunarbúnað og hlusta á samtöl og ,,stela upplýsingum."

Mörg fyrirtæki bjóða upp á beintengda (online) rafræna þjónustu, þar sem þú getur pantað vörur og þjónustur, borgað reikninga, náð þér í tónlist og óendanlega margt fleira. Fyrirtæki og stofnanir sem bjóða upp á beintengda rafræna þjónustu hafa möguleika á að halda skrá yfir alla sem heimsækja heimasíður þeirra - og þar með skapast ákveðin áhætta á misnotkun upplýsinganna.

Óumbeðnar auglýsingar
Anna og Haraldur eiga barnabarn sem keppir á skíðum og snjóbrettum. Barnabarnið þeirra, Guðjón, á afmæli í næsta mánuði. Gömlu hjónin hafa verið að ræða um hvað sé nú hægt að gefa honumí afmælisgjöf, þau eru ekki mjög fjáð og þar að auki vita þau ekkert hverju unga fólkið nú á dögum hefur áhuga á. Í fyrra prjónaði Anna peysu handa Guðjóni, og þar áður húfu. Þau hafa á tilfinningunni að honum hafi ekki líkað gjafirnar - alla vega hafa þau hvorki séð hann skarta húfunni né peysunni. Í gær fengu þau auglýsingahefti í póstkassann sinn, en í því var mikið af spennandi tilboðum, meðal annars á skíðabúnaði. Haraldur og Anna halda að barnabarnið kunni að hafa áhuga á einhverju sem þar er auglýst og því fyllir Haraldur út miða sem fylgdi auglýsingabæklingnum, sendir til fyrirtækisins og biður um nánari upplýsingar um vörur fyrirtækisins.

Viku seinna fær Haraldur stóran bækling með upplýsingum um skíðavörur og skíðafatnað. Önnu og Haraldi finnst verðið allt of hátt þannig að þau panta ekkert, ákveða að gefa Guðjóni bara púsluspil að þessu sinni. Nokkrum mánuðum síðar fær Haraldur bréf frá ferðaskrifstofu með tilboði um skíðaferð til Austurríkis. Bréfið vakti undrun Haraldar og Önnu, því það var stílað á nafn Haraldar. Hvernig stóð á því að ferðaskrifstofan hafði nafnið hans undir höndum? Haraldur verður mjög upp með sér yfir því að þekkt fyrirtæki skuli vera að skrifa honum persónulegt bréf með sérstöku tilboði. Hann vill strax panta ferðina fyrir þau Önnu, þó svo að þau hafi hvorki farið til útlanda né staðið á skíðum. Með miklum herkjum og fortölum tekst Önnu að fá Harald ofan af hugmyndinni.

Upplýsingar - mikilvægasta vara upplýsingasamfélagsins
Upplýsingar eru verðmæt verslunarvara og mörg fyrirtæki sérhæfa sig í að versla með heimilisföng á ólíkum hópum fólks. Fyrirtækin beita ýmsum aðferðum við upplýsingasöfnunina og selja þær síðan áfram til annarra fyrirtækja sem hafa áhuga á að nálgast ákveðna hópa viðskiptavina.

Um leið og fyrirtæki er komið með lista (gagnabanka) yfir hugsanlega viðskiptavini, sendir það einstaklingunum á listanum bréf sem lítur út fyrir að vera skrifað persónulega til móttakanda. Margir viðskiptavinir verða svo upp með sér yfir að fyrirtæki úti í bæ skuli skrifa þeim persónulega að þeir falla í freistni og kaupa vöruna eða þjónustuna sem verið er að bjóða.

Kostir og gallar við skráningu
Ýmsir kostir fylgja rafrænni skráningu. Samskipti ganga hraðar fyrir sig og þú getur, með því að skrá þig hjá fyrirtækjum á Netinu fengið nýjustu upplýsingarnar á áhugasviðum þínum. Ef þú hefur til dæmis einhvern tíma keypt vöru á Netinu (t.d. geisladisk eða bók) er líklegt að fyrirtækið sendi þér upplýsingar um nýjar vörur tengdum þeim sem þú pantaðir. Þetta hefur þann kost í för með sér að þú þarft ekki að leita sjálf(ur) eftir nýjum vörum, en gallinn er sá að þú getur fengið mikið af upplýsingum um vörur og þjónustu sem þú kærir þig ekkert um.

Mörgum finnst samkeyrsla upplýsinga hins vegar vera ógnvekjandi. Ef lögregluskýrslur eða sjúkraskýrslur eru til dæmis keyrðar saman við aðra gagnabanka, gætu framtíðarhorfur þínar breyst til hins verra. Við skulum skoða dæmi:

Sigríði langar til að skipta um starf og gerast flugfreyja. Hún sér auglýsingu í blaði og ákveður að sækja um. Hún hefur samt smá áhyggjur vegna þess að spurt er um hvort hún hafi hreint sakavottorð. Í fyrra fór hún ásamt saumaklúbbnum sínum í innkaupaferð til útlanda - en þeirri ferð vill hún helst gleyma. Hún fékk sér aðeins of mikið að drekka í vélinni á leiðinni heim og þegar tollvörðurinn í flugstöðinni vildi fá að skoða farangurinn hennar, neitaði hún því. Hún ætlaði sko ekki að láta hann hirða af sér allar jólagjafirnar og vínið sem hún var búin að kaupa. Málið endaði með því að hún beit tollvörðinn í átökum og var kærð fyrir atvikið. Ef fyrirtæki sem hún er að sækja um vinnu hjá kæmist í gangabanka lögreglunnar gæti það haft afleiðingar fyrir starfsumsókn hennar.

Aðgangur að gagnagrunnum gefur mikil völd og því er mikilvægt að þeir sem hafa aðgang að grunnunum séu vandanum vaxnir. Í gangagrunnum geta verið viðkvæmar upplýsingar sem þú vilt ekki að hver sem er geti skoðað. Yfirleitt fá ekki aðrir en þeir sem njóta fyllsta trúnaðar aðgagn að opinberum gagnagrunnum.

Þegar tæknin undirokar
Það er ekkert nýtt við að fólk óttist nýja tækni. Margir rithöfundar hafa skrifað skáldsögur um jákvæðar og neikvæðar hliðar tæknisamfélaga. Einn þeirra var rithöfundurinn George Orwell (1903-1950) sem árið 1948 skrifaði skáldsöguna 1984. Skáldsagan fjallar um einræðisríki í framtíðinni, þar sem valdhafarnir nota nútímatækni til að fylgjast með þegnunum allan sólarhringinn, heilaþvo þá og kúga. Í umræðunni um rafræna skráningu og eftirlit nú á dögum er oft skírskotað til sögunnar og sagt: ,,Big Brother is watching you" eða stóribróðir (ríkið) fylgist með þér.