Ofbeldi_gegn_börnum - page 10

8
Kolbrún Svavarsdóttir, 2010). Rannsóknir, þar sem fólk er sjálft spurt,
sýna svipaða tíðni ofbeldis í nánum samskiptummeðal karla og kvenna,
en jafnframt að mun hærra hlutfall kvenna verður fyrir alvarlegum
skaða eða deyr af völdum þess. Þetta á einnig við um hlutfall fólks sem
leitar á slysadeildir og í klíníska meðferð (Archer, 2006; Straus, 2009).
Rannsóknir sýna einnig að móðurhlutverk kvenna gerir bæði þær og
börnin viðkvæm og bundin á klafa vegna ofbeldisins (Mullender, Hague
., 2002; Øverlien, 2007). Færri rannsóknir beinast að feðrum sem
beita ofbeldi milli nátengdra en sumir þeirra hafa áhyggjur af áhrifum
þess á tengsl við eigin börn (Perel og Peled, 2008; Stanley, Fell, Miller,
Thomson og Watson, 2012). Börn sem verða áskynja um ofbeldi verða
að sjálfsögðu fyrir margs kyns neikvæðum afleiðingum eins og nánar
verður komið að.
Handbókin skiptist í tíu kafla. Í fyrsta kafla er almenn umfjöllun og í
öðrum kafla er rætt um fordóma. Þriðji kafli fjallar um börn sem búa við
ofbeldi á heimilum, áhrif og einkenni og afleiðingar. Fjórði kafli fjallar
um einelti gegn börnum í skóla og sá fimmti um ofbeldi í fjölmiðlum
og á netinu. Í sjötta kafla eru ræddar forvarnir í skólastarfi. Sjöundi
kafli er um félagslega ráðgjöf og meðal annars tilkynningarskyldu til
barnaverndar. Áttundi kafli fjallar um viðtöl við barn vegna ofbeldis og
níundi kafli um verkferla. Í tíunda kafla eru tekin fyrir hagnýt verkefni
í skóla gegn ofbeldi, meðal annars ráðgjöf til barna.
1,2,3,4,5,6,7,8,9 11,12,13,14,15,16,17,18,19,20,...92
Powered by FlippingBook