Ofbeldi_gegn_börnum - page 12

10
Ofbeldi gegn börnum er yfirleitt skipt annars vegar í andklegt, líkamlegt
eða kynferðislegt ofbeldi og hins vegar í vanrækslu (WHO, 2008). Einelti
er oft aðgreint sem sérstakt birtingarform.
Ofbeldi tengist einnig vændi og mansali. Af þessu má sjá að ofbeldi er
margþætt fyrirbæri og innbyggt í og háð samfélagsgerðinni. Skilningur
manna á því hvað telst vera ofbeldi er háður venjum og því hvaða athafnir
og hegðun er menningarlega viðurkennd á heimilum, í skólum eða annars
staðar. Hin ýmsu form ofbeldis fléttast þó oft saman. Til dæmis getur
barn sem verður vitni að ofbeldi milli foreldra, sem eru í vímuefnaneyslu,
einnig orðið fyrir ofbeldi af hendi eldri systkina og barn sem býr við
viðvarandi vanrækslu getur orðið fyrir einelti í skóla. Þó að gátlistar geti
komið að notum við greiningar gefa þeir ekki tæmandi svör og oft þarf
að líta á heildarmynd af aðstæðum barns.
Erlendis eru til fjölmargar rannsóknir á hvers kyns ofbeldi frá ýmsum
hliðum en einungis fáar hérlendis, þó að þær færist nokkuð í aukana.
Hér á eftir verður lýst í stuttu máli nýlegri þekkingu á efninu og þá
sérstaklega miðað við börn.
Rætt er um hin ýmsu form ofbeldis sem bitna á börnum og eru ofarlega á
baugi í umræðu um aðkomu skóla, svo sem um heimilisofbeldi, ofbeldi á
netinu, í fjölmiðlum og einelti. Vísað er í tiltækar rannsóknir og hagnýtt
efni, sem telja verður að nýtist kennurum og eiga heima í handbók fyrir
starfslið skóla. Slík umfjöllun getur vísað veginn fyrir þann sem leitar
fanga en er ekki tæmandi.
Tekið er á ofbeldi frá félagslegum sjónarhóli og því er fjallað um fordóma.
Skilgreiningar á ofbeldi eru félagslega mótaðar, þær verða til í hverju
samfélagi og tengjast ríkjandi menningu. Löggjöfin tekur mið af þessu.
Dæmi um slíkt er að á Norðurlöndum er refsivert að flengja börn, ólíkt
því sem er í Englandi þar sem foreldrum leyfist að refsa börnum líkam-
lega fyrir óæskilega hegðun, svo sem með því að flengja þau.
Hætta getur falist í að styðjast við flokkanir á ofbeldi, sérstaklega ef
ein gerð flokkunar er yfirfærð yfir á annan menningarheim, þar sem
samskipti og reglur á heimili og í skóla eru gerólík. Flokkanir á ofbeld-
isformum stuðla þó að sameiginlegum skilningi á því hvað er löglegt,
ólöglegt og samfélagslega viðurkennt, þær auðvelda samhæfingu og
ákvarðanir um viðbrögð og augljósara verður hvað barni er fyrir bestu
í aðstæðum sem koma upp.
Skilgreiningar á
ofbeldi eru félags-
lega mótaðar og
tengjast menningu
1...,2,3,4,5,6,7,8,9,10,11 13,14,15,16,17,18,19,20,21,22,...92
Powered by FlippingBook