Previous Page  93 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 93 / 108 Next Page
Page Background

91

MAT Á MARGA VEGU :

SKAPANDI SKÓLI

Mat á marga vegu

Í skólastarfi sem miðar að fjölbreyttum kennsluháttum, sköpun og gagnrýninni

hugsun nemenda er mikilvægt að námsmat taki mið af þeim áherslum. Nám

í grunnskóla tekur ekki bara til þekkingaratriða og færniþátta í þröngum skiln-

ingi heldur einnig félagslegra samskipta, verkfærni, skipulags, útsjónarsemi, inn-

sæis og hugmyndaflugs, svo nokkur atriði séu nefnd. Þess vegna þarf kennarinn,

rétt eins og nemandinn, að beita hugmyndaflugi sínu og sköpunarkrafti og leita

margra leiða til að meta framfarir og árangur nemenda.

Við námsmat þarf ætíð að hafa í huga bæði markmið námsins sjálfs og tilganginn

með matinu. Er ætlunin að meta hvort nemendur hafi hlustað vel og lesið og

muni ákveðnar staðreyndir, svo sem hvað foreldrar og bræður Snorra Sturlu-

sonar hétu eða helstu afkomendur Auðar djúpúðgu? Skiptir ef til vill meira máli

að nemendur búi yfir einhverjum skilningi á uppvexti og lífshlaupi þeirra Auðar

og Snorra, setji sig í þeirra spor og hafi raunverulega tilfinningu fyrir því hvernig

lífi þeirra var háttað, átti sig eitthvað á því þjóðfélagi sem var hér á landi við land-

nám eða á átakatímum Sturlungaaldar og setji sögu þessara höfðingja í samhengi

við aðra þjóðfélagshópa og þá atburði sem þá mótuðu Íslandssöguna? Á að kanna

grunnskilning nemenda á deilingu eða skiptir mestu að út úr deilingardæminu

komi hárrétt svar? Og svo má spyrja hvort þekking á staðreyndum og færniþættir

haldist ekki í hendur við skilning og næmi? Hættan er sú að einföld þekkingar-

atriði sem auðvelt er að mæla og sannreyna með spurningu og svari verði helsti

mælikvarðinn þegar til prófs kemur en ekki innsæi og efnisríkt nám.

Stundum er ætlunin að kanna getu nemenda til að viðhafa nákvæmni í vinnu-

brögðum eða færni til að setja þekkingu sína fram með skipulögðum hætti en

stundum er mikilvægara að sjá hvort nemendur búi yfir þeirri hæfni að geta farið

ólíkar leiðir að sama marki, að þeir kunni að bjarga sér. Mikilvægt er að bjóða

nemendum upp á mismunandi leiðir til að sýna fram á árangur og afrakstur af

því námi sem farið hefur fram og stuðla þannig að einstaklingsmiðun, opnum

kennsluháttum og sveigjanleika í öllu skólastarfi.

Hér verður brugðið upp nokkrum myndum af því hvernig fara má ólíkar leiðir

í námsmati, bæði með prófum og öðrum hætti. Hefðbundin eða venjuleg próf

verða látin liggja á milli hluta en aðeins minnt á að spurningar og viðfangs-

efni séu skýrt mótuð og aðgengileg þannig að nemendur velkist ekki í vafa um

um hvað þau snúast. Þetta á að sjálfsögðu við um námsmat yfirleitt.