Previous Page  94 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 94 / 108 Next Page
Page Background

92

Próf

Samvinnupróf

Samvinnupróf eru í rauninni ekki frábrugðin hefðbundnum einstak-

lingsprófum á nokkurn hátt annan en þann að tveimur til þremur nemend-

um er falið að leysa prófið saman. Grundvallaratriði þegar þessi leið er farin

er að nemendum sé fyllilega ljóst að allir bera jafna ábyrgð, allir verða að

leggja sig fram í góðri samvinnu við aðra í hópnum þannig að sú færni og

þekking sem parið eða hópurinn býr yfir fái að njóta sín. Sjaldan koma upp

vandamál þegar um samvinnupróf er að ræða en ef upp koma óleysanleg

ágreiningsatriði innan hóps á meðan á prófi stendur þarf kennarinn að meta

hvernig best má vinna úr því. Gott er að leggja einstaklingskönnun fyrir

nemendur eftir prófið þar sem hver og einn metur framlag sitt og fram-

lag félaga í hópnum. Allir fá þá tækifæri til að koma að athugasemdum um

samvinnuna eða annað viðkomandi prófinu sjálfu og próftökunni. Best fer

á því að kennari velji saman próffélaga og að nemendur viti ekki fyrir fram

með hverjum þeir vinna. Hver og einn þarf þá að undirbúa sig vel fyrir alla

þætti prófsins og getur ekki falið suma þeirra félögum sínum. Merkilegt er

að fylgjast með því hvernig nemendur laða fram þekkingaratriði hver hjá

öðrum þegar próf er haldið með þessum hætti og því má halda fram að þessi

gerð prófa sé ekki síður tæki til náms en mats á námi. Á fylgivef bókarinnar

er að finna dæmi um einstaklingskönnun sem nemendur fylla út eftir sam-

vinnupróf.