Previous Page  99 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 99 / 108 Next Page
Page Background

97

MAT Á MARGA VEGU :

SKAPANDI SKÓLI

efni sín og annarra með gagnrýnum og jafnframt uppbyggilegum hætti,

sem hlýtur að teljast gott veganesti út í lífið.

Þegar nemendur fá að taka þátt í mati á eigin námi eða mati á frammistöðu

skólafélaga sinna þarf þetta mat þeirra að hafa vægi í heildareinkunnagjöf

kennarans og nemendum þarf að vera það ljóst frá upphafi. Að sjálfsögðu

á kennarinn síðasta orðið og nemendur þurfa að gera sér grein fyrir því,

en svona mat fellur dálítið um sjálft sig ef nemendur sjá engan beinan

ávinning af því eða tilgang.

Á vef bókarinnar er dæmi um gátlista sem nota má við sjálfsmat nemenda

og jafningjamat. Auk þess er þar að finna slóðir á hugmyndabanka með

fjölbreyttum gátlistum sem taka til margvíslegra þátta í jafningjamati og

sjálfsmati, auk fleiri hagnýtra atriða til að hafa til hliðsjónar við mat í

skólastarfinu.

Námsmat í verkefnatengdu námi

Þegar meta á verkefnavinnu sem nær yfir lengra tímabil (e.

project

) er

mikilvægt að líta á allt verkferlið. Í slíkri verkefnavinnu verða til afurðir

á ýmsum stigum sem hægt er að rýna auk þess sem kennarar og nemend-

ur ættu að fá tækifæri til að fara yfir það sem komið er og velta því upp

hvert rétt sé að stefna í framhaldinu. Til þess að þetta samtal kennara og

nemenda eigi sér örugglega stað getur verið gott að setja vörður að staldra

við á viðeigandi stöðum í vinnuferlinu. Mikilvægt er að nemendur séu

vel upplýstir um það hvar í verkefnavinnunni verði numið staðar og stað-

an metin, hvað verði metið og hvernig. Að sjálfsögðu geta nemendur og

kennarar staðið saman að því setja niður þessar vörður og þær fá jafnvel

meira vægi í augum nemenda ef slík vinnubrögð eru viðhöfð. Þessar vörð-

ur marka gjarnan lok eins verkþáttar í verkefninu og upphaf þess næsta,

þótt ekki sé það algilt.

Verkmöppur

Verkmappa, stundum einnig nefnd portfólíó, er safn verkefna sem nem-

andi hefur unnið og er til marks um þá vinnu sem hann hefur innt af

hendi, framfarir og árangur á einu eða fleiri námssviðum. Nauðsynlegt

er að nemandinn sjálfur hafi tekið þátt í að velja verkefnin í möppuna. Í

möppunni ættu að vera dæmi um það besta sem nemandinn hefur gert,