Previous Page  95 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 95 / 108 Next Page
Page Background

93

MAT Á MARGA VEGU :

SKAPANDI SKÓLI

Einstaklingsmiðuð próf

Þegar lögð er áhersla á einstaklingsmiðun í kennsluháttum og námi nemenda

má spyrja sig hvort eðlilegt sé að allir nemendur taki sama prófið. Á sama hátt

og einstaklingsmiðun í kennslu gerir ráð fyrir mismunandi forsendum nem-

enda við nám ættu einstaklingsmiðuð próf að skoða árangur af þeirri einstak-

lingsbundnu námsvinnu sem hver og einn á að baki. Nemendahópurinn er

jafnan samsettur úr afar ólíkum einstaklingum sem búa yfir ýmiss konar

færni og getu í hverri grein fyrir sig. Þegar próf eru einstaklingsmiðuð er gert

ráð fyrir sömu viðfangsefnum og efnisþáttum hjá öllum hópnum en ekki að

allir hafi tileinkað sér efnið á sama hátt eða jafn vel. Það fer því eftir ferli og

forsendum hvers nemanda á hvað lögð er áhersla í prófinu eða hvernig það er

upp byggt. Ekki er þó nema í undantekningartilfellum nauðsynlegt að semja

sérstakt próf fyrir hvern og einn nemanda.

Oftast er látið nægja að semja próf af þremur eða fjórummismunandi gerðum.

Þeir nemendur sem eru vel að sér um efnið og hafa náð á því góðum tökum

taka próf sem reynir á færni þeirra þar sem þeir eru staddir og þeir nemendur

sem ekki hafa náð svipuðum tökum á efninu taka próf sem er byggt upp á ann-

an hátt. Má hér taka sem dæmi að nemandi sem hefur ekki náð að tileinka sér

að fullu þá tækni sem felst í því að beita margföldunartöflunni við úrlausnir

á dæmum sem sett eru upp á hefðbundinn hátt fengi próf þar sem sú færni

í margföldun sem hann býr yfir er skoðuð. Uppsetning dæma tæki mið af

þessu og þyngd dæmanna einnig. Annað dæmi um slíka einstaklingsmiðun

er próf í ensku. Færni nemenda í ensku er oft mjög ólík innan hópa og þá er