95
MAT Á MARGA VEGU :
SKAPANDI SKÓLI
Gagnapróf
Gagnapróf getur verið hefðbundið einstaklingspróf eða samvinnupróf, ritgerðar-
próf eða próf annarrar gerðar, allt eftir áherslum námsins eða hugmyndaflugi
kennarans. Eins og heiti prófsins gefur til kynna mega nemendur koma með gögn
í prófið. Þetta geta annars vegar verið skýrt tilgreind gögn eins og orðabækur í
tungumálapróf eða námsbækur í viðkomandi fagi, eða hins vegar hver þau gögn
sem nemendur telja líklegt að gætu komið að gagni við próftökuna (verkefni,
námsbækur, orðabækur, tölvur, símar – jafnvel foreldrar gætu talist til prófgagna
ef ekki væru settar neinar skorður). Eina skilyrðið er auðvitað að réttur aðili taki
prófið. Mikilvægt er að leggja á það áherslu við nemendur að þeir þurfi að undir-
búa sig vel fyrir prófið. Oft er lítið gagn af öllum gögnunum ef enginn undirbún-
ingur hefur farið fram áður. Þá getur farið svo að mestur tíminn fari í að leita að
upplýsingum og of lítill tími gefist til að leysa verkefnin eða svara spurningunum.
Svindlmiðapróf
Svindlmiðaprófin eru líkt og samvinnuprófin hefð-
bundin að gerð. Það sem helst greinir þau frá venju-
legum prófum er að nemendur fá leyfi til að koma með
svonefndan svindlmiða í prófið og mega nýta sér það
sem á honum stendur. Best er að hafa skýr viðmið um
stærð og gerð sjálfs miðans, miða til dæmis við blað af
stærðinni A5, handskrifað af próftaka báðum megin,
en þar lýkur afskiptum kennarans af miðanum.
Hversu mikið af upplýsingum og þekkingaratriðum
nemendum hefur tekist að koma fyrir á miðanum er
undir hverjum einstaklingi komið. Þegar þessi háttur
er hafður á eru nemendur oft miklu skipulagðari og
markvissari í prófaundirbúningnum. Heilmikið nám
felst í að meta hvaða upplýsingar gott er að hafa með
sér í prófið og eftir situr þekking sem síast inn í stað
einhvers konar minnislista sem hefur ekki neina
merkingu fyrir nemendur að próftímanum loknum.
Gjarnan skapast góður samstarfsandi milli nemenda
við undirbúning svindlmiðaprófa, þeir ræða sín á milli
um efni miðanna sinna, bæta atriðum inn eða undir-
strika einhver atriði sem almennt eru talin mikilvæg.