Manndómsvígsla

Búddadómur / Siðir / Manndómsvígsla

Sækja pdf-skjal

 

Í búddadómi þarf fólk ekki að staðfesta trúna með fermingu eða annarri manndómsvígslu. Það er hins vegar ekki neitt sem hindrar það og í theravadasið eru haldnar sérstakar manndómsvígslur.

Á Íslandi er algengt að unglingar sem eru búddatrúar vilji vera eins og flestir íslenskir unglingar og fermast. Margir fermast borgaralegri fermingu en sumir fermast að kristnum sið. Ef þau velja að fermast að kristnum sið þurfa þau að láta skíra sig fyrst.