Lifað í lýðræði - page 134

132
Lifað í lýðræðisríki
................................................................................................................................................................................................................................................................................
t. Þar sem X er svartur fær hann ekki vinnu sem læknir á sjúkrahúsinu.
u. Í sumum löndum hefur bágstatt fólk engan aðgang að mat eða húsnæðiskerfi og á ekki
kost á heilbrigðisþjónustu á viðráðanlegu verði.
v. Maðurinn X átti hús sem brann til grunna og gat ekki gert neina kröfu um bætur.
w. X, 47 ára gömul kona, sem hefur alltaf verið heimavinnandi húsmóðir og á fimm börn,
missir rétt til allrar félagslegrar aðstoðar um leið og hún skilur við manninn sinn.
x. X, sem er tveggja barna faðir, var fangelsaður og pyntaður í landinu X fyrir að hafa ort
ljóð þar sem stjórnvöld voru gagnrýnd. Umsókn hans um pólitískt hæli í landinu A var
hafnað. Hann hélt því fram að pyntingar biðu hans ef hann sneri heim, eins og nú á að
neyða hann til að gera.
y. Af svokölluðum hagkvæmnisástæðum er líkamlega fötluðu fólki, svo sem notendum
hjólastóla, ekki leyft að sækja menningarviðburði í leikhúsinu.
z. Þeir sem sækja um ríkisborgararétt í landinu X þurfa að hafa verið búsettir í fimmtán
ár í landinu og leggja fram vottorð um andlegt og líkamlegt heilbrigði auk þess að greiða
óhóflega hátt umsýslugjald. Afleiðingin er sú að þúsundir rómafólks, sem eiga sér langa
sögu í landinu, eru án ríkisfangs í eigin landi.
1...,124,125,126,127,128,129,130,131,132,133 135,136,137,138,139,140,141,142,143,144,...212
Powered by FlippingBook