Lifað í lýðræði - page 50

48
Lifað í lýðræðisríki
................................................................................................................................................................................................................................................................................
Kennslustundin
Kennarinn getur annaðhvort lesið upp af dreifiblaði 2.1 eða látið nemendur fá eintak af því til að
lesa sjálfir.
Saga Vesnu
Vesna, sem er stúlka af rómaættum, segir frá reynslu sinni:
„Ég sá auglýst eftir aðstoðarmanneskju við afgreiðslu í glugga á fatabúð. Viðkomandi átti að
vera á aldrinum 18 til 20 ára. Ég er 19 þannig að ég fór inn og spurði verslunarstjórann um
starfið. Hún sagði mér að koma aftur eftir tvo daga vegna þess að það hefðu ekki nógu margir
sótt um.
Ég mætti tvisvar á staðinn en fékk sama svarið. Um það bil viku síðar fór ég aftur í búðina.
Auglýsingin var enn í glugganum. Verslunarstjórinn var of upptekinn til að hitta mig en mér var
sagt að búið væri að ráða í starfið.
Ég var í svo miklu uppnámi eftir þetta að ég bað vinkonu mína, sem ekki er af rómaættum, að
fara og spyrjast fyrir um starfið. Þegar hún kom þaðan sagði hún mér að hún hefði verið beðin
að mæta í viðtal næsta mánudag.“
Þegar allir nemendurnir hafa heyrt eða lesið söguna skiptir kennarinn þeim í fjögurra eða fimm
manna hópa og biður þá að fjalla um eftirfarandi spurningar (spurningarnar eru á dreifiblaðinu;
hafi kennarinn lesið söguna upphátt skrifar hann spurningarnar á töfluna):
1. Hvernig myndi ykkur líða ef þið lentuð í því sem Vesna varð fyrir? Hvernig mynduð þið
bregðast við ef vinkona ykkar segði ykkur að hún hefði verið boðuð í viðtal?
2. Hvers vegna haldið þið að verslunarstjórinn hafi hegðað sér svona? Teljið þið að um einhvers
konar mismunun sé að ræða? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
3. Hvað gat Vesna gert í málinu? Haldið þið að hún hefði getað gert eitthvað öðruvísi? Hvað
hefðu aðrir getað gert til að hjálpa henni?
4. Haldið þið að löggjöfin nái til slíkra tilvika? Hvernig ættu lögin að vera?
5. Gæti þetta komið fyrir hér á landi? Ef svo er, hvaða hópar yrðu þá fyrir því?
Kennarinn biður nemendur um fyrstu viðbrögð þeirra við spurningunum. Það er hægt að gera
með því að spyrja hvern hóp einnar spurningar eða biðja hópana um stutt svör við fleiri en einni
spurningu.
Kennarinn segir síðan nemendum að saga Vesnu sé sönn, þetta hafi átt sér stað fyrir rúmlega tíu
árum, og að seinna þegar verslunarstjórinn hafi verið spurður hvers vegna hún hefði hagað sér
svona, þá hafi svar hennar verið eftirfarandi:
Svar verslunarstjórans
„Ég hélt að það yrði erfitt fyrir Vesnu að vinna hérna vegna þess að það tæki hana svo langan
tíma að komast í vinnuna. Það hefði verið þrettán kílómetra ferðalag í tveimur strætisvögnum.
Það er mjög erfitt að reka verslun ef starfsfólkið mætir alltaf of seint. Ég vil endilega ráða ein-
hvern héðan úr hverfinu. Manneskjan sem ég réði til starfa virtist vera sú eina rétta.“
1...,40,41,42,43,44,45,46,47,48,49 51,52,53,54,55,56,57,58,59,60,...212
Powered by FlippingBook